Fara í efni
Umræðan

Séreignarsparnaðurinn

Á einhverjum tímapunkti í lífi þorra alls ungs fólks skiptir það máli að eignast varanlegt skjól fyrir sig og sína.

Þetta þekki ég af eigin raun því foreldrar mínir þurftu á tímabili að þvælast um á óstöðugum leigumarkaði sem hafði það í för með sér að við fjölskyldan þurftum oft að flytjast búferlum. Það er bara svona eins og gengur og gerist. Það er mér þó sérstaklega minnisstætt hversu óþægilegt það reyndist foreldrum mínum að vera í þessari stöðu. Ég var þó það heppin að flutningarnir áttu sér, oftast nær, stað innan sama sveitarfélags svo lítið rót varð á námi mínu í grunnskóla.

Þegar ég byrjaði svo sjálf að búa um 18 ára aldurinn og kom inn á leigumarkaðinn varð skýrt hversu lítið hafði breyst á íslenskum leigumarkaði. Leigumarkaðurinn er hverfull og óstöðugur og tíðir flutningar ekkert einsdæmi. Það er því eðlilegt að ungu fólki sé það hugleikið að eignast fasteign fyrr en seinna. Leigumarkaðinn má vissulega bæta og stórauka þarf stöðugleika hans, en hér vil ég nema staðar og ræða þau úrræði sem standa ungu fólki til boða á fasteignamarkaði í dag.

Séreignarsparnaðurinn

Við þurfum að standa vörð um nýtingu séreignarsparnaðar til kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól lána. Sú leið hefur reynst unga fólkinu í kringum mig, og mér sjálfri, gríðarlega mikilvæg til þess að komast inn á fasteignamarkaðinn. Heimildin hefur verið framlengd til 30. júní 2023 en mikilvægt er að úrræðið verði varanlegt val einstaklinga til að tryggja að næstu kynslóðir geti notið þess.

Lægri skattar

Séreignarsparnaðarleiðin er skattfrjáls ráðstöfun á fjármunum. Það þýðir einfaldlega að séreignarsparnaður þinn er undanþeginn skatti þegar hann er nýttur til kaupa á fasteign, en við útgreiðslu sem lífeyrir er hann skattlagður.

Séreignarsparnaðarleiðin er tvíþætt, annars vegar er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán og hins vegar er hægt að fá séreign útborgaða skattfrjálst upp í fyrstu greiðslu vegna kaupa á fasteign.

Hlutdeildarlánin

Með tilkomu hlutdeildarlána árið 2020 var komið til móts við tekjulægri hópa gagnvart fasteignakaupum. Nú þarf lántaki einungis að reiða fram 5% af kaupverði húsnæðisins í útborgun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir svo kaupanda 20% lán og þá þarf einungis 75% húsnæðislán frá lánastofnun. Á hlutdeildarláninu eru engir vextir og engar afborganir. Lántaki endurgreiðir lánið þegar hann selur eignina eða við lok lánstíma, sem er til 10 ára með heimild til 5 ára framlengingu í senn, hámarks framlengingu til 25 ára alls.

Hlutdeildarlánin eru því hugsuð fyrir einstaklinga sem komast í gegnum greiðslumat og geta greitt af lánum en þurfa sérstaka aðstoð við útborgun. Lánin veita einstaklingum undir ákveðnum tekjumörkum tækifæri til að komst út af leigumarkaði og inn á fasteignamarkaðinn eða úr foreldrahúsum.

Afnemum stimpilgjöld

Stimpilgjöld af lánaskjölum hafa verið afnumin og afsláttur veittur af stimpilgjaldi vegna fyrstu kaupa. Það eru ekki allir fyrstu kaupendur sem gera sér grein fyrir þessum kostnaði en hann getur numið nokkrum hundruðum þúsunda króna, allt eftir kaupverði viðkomandi fasteignar. Með aukinni sjálfvirknivæðingu og rafrænni stjórnsýslu er mikilvægt að stíga skrefið til fulls og afnema öll stimpilgjöld hins opinbera.

Tryggjum varanleg úrræði og höldum áfram að leita leiða sem nýtast unga fólkinu okkar áfram um ókomna tíð. Það er baráttumál okkar allra.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skipar 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september.

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00

Hér rís önnur heilsugæslustöð

Ingibjörg Isaksen skrifar
07. mars 2024 | kl. 13:11