Fara í efni
Íþróttir

Malarhjólreiðahlutinn í Súlur Vertical í dag

Hafdís Sigurðardóttir er sigursæl í hjólreiðum. Hér er hún að vísu ekki á malarvegi heldur í tímatöku fyrr í sumar þar sem hún vann Íslandsmeistaratitil. Hafdís vann Hamarinn í þríleiknum í fyrra, en það er lengsta brautin, 130 km. Mynd: Ármann Hinrik.

Þriðji hlutinn í þríleiknum sem Súlur Vertical stendur fyrir er á dagskrá í dag. Þríleikurinn felst í skíðagöngu sem fram fór 29. febrúar og á rætur að rekja til Hermannsgöngunnar, fjallahlaupinu sem fram fór um verslunarmannahelgina og svo malarhjólreiðum sem eru á dagskránni í dag.

Það er Hjólreiðafélag Akureyrar sem sér um framkvæmd malarhjólreiðahluta þríleiksins, eða Fimm skóga gravel eins og þessi hjóreiðakeppni er nefnd. Upphafsstaður er í Kjarnaskógi, en mismunandi eftir vegalengdum hvert leiðin liggur.

Boðið er upp á þrjár vegalengdir, 130 km, 82 km og 40 km. Á vef HFA má finna allar upplýsingar um hlaupið og leiðarlýsingar fyrir þessar þrjár mismunandi vegalengdir.

Mölin – 40 km - malar- og rafhjól
 
Tæplega 40 km leið sem hefst og endar í Kjarnaskógi. Hjólað er yfir gömlu brýrnar og farið upp Knarrarbergsbrekkuna, niður Leifsstaðabrekkuna og upp Veigastaðaveginn þar sem haldið er upp á topp á Vaðlaheiði. Þar er snúið við og haldið sömu leið til baka í mark.

Mölin er leið fyrir fólk sem leitar að áskorun, vill njóta þess besta sem þekkist í hjólreiðum og reyna á sig upp brekkur sem eru samt ekki of langar. Brautin hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í malarhjólreiðum, hvort sem það leitar að keppni eða áskorun eða bara til að taka þátt í skemmtilegum viðburði og gera sér glaðan dag.

Leiðarlýsing og gpx skrá: https://www.strava.com/routes/3387813945971040632 ​​​​​​​​​​​​​​​​​​

Klöppin – 82 km - malarhjól og skemmtiflokkur

Leiðin er 82 km og liggur yfir Vaðlaheiðina, inn í Vaglaskóg þar sem hjólaður er hringur í gegnum Lundsskóg og Þórðarstaðaskóg að Illugastöðum og þaðan aftur upp og yfir Vaðlaheiðina sömu leið til baka.

Klöppin er fyrir lengra komna, en á færi flestra sem hafa reynslu af hjólreiðum eða öðrum úthaldsíþróttum. Gott klifur í byrjun, en lokakaflinn sér til þess að keppendur koma sveittir og sælir í endamark eftir að hafa sigrast á leiðinni og sjálfum sér.

Boðið er upp á skemmtiflokk (fondo) fyrir þá sem er að leita að alvöru áskorun en eru ekki í keppnishug eða ef t.d. vinahópurinn vill fara saman í skemmtilegt ævintýri. Skemmtiflokkur ræsir skömmu eftir keppnisflokknum. Allir fá tímana sína skráða og fá þátttökuverðlaun.

Leiðarlýsing og gpx skrá: https://www.strava.com/routes/3387813482433481954

Hamarinn – 130 km - malarhjól, fyrir lengra komna

Hamarinn er 130 km að lengd og fer sömu leið og Klöppin nema þegar þátttakendur koma niður Vaðlaheiðina beygja þeir til norðurs og hjóla Skuggabjargarskóg, Dalsmynni og þaðan inn í Vaglaskóg. Leiðin liggur um stóran hluta Fnjóskadals og er krefjandi og tæknileg en ekki of löng. Hamarinn er fyrir þá allra hörðustu sem vilja alvöru áskorun og keppast um hver sé allra mesti hamarinn.

Leiðarlýsing og gpx skrá: https://www.strava.com/routes/3506711214412473764