Fara í efni
Íþróttir

Átta frá HFA á mölinni í Rangárvallasýslu

Hafdís Sigurðardóttir var ein átta keppenda frá HFA á The Rift, alþjóðlegri hjólreiðakeppni á malarvegum í Rangárvallasýslu um liðna helgi. Mynd: KORDIAN / The Rift.

Hjólreiðafélag Akureyrar átti nokkra keppendur á The Rift hjólreiðakeppninni þar sem hjólað er á malarvegum. Keppnin fór fram um liðna helgi. Hafdís Sigurðardóttir varð í 11. sæti í Pro/Elite flokki kvenna í 200 km vegalengd, Bjarni Jónasson í 8. sæti í 140 km í opnum flokki karla og Harpa Hermannsdóttir 8. sæti í 140 km opnum flokki kvenna.

Árangur einstakra keppenda úr röðum HFA má sjá á listanum hér að neðan og hægt að skoða úrslit í hverjum flokki með því að smella á viðkomandi flokk. Öll úrslit má finna á timataka.net/therift2026.

Myndirnar með fréttinni er fengnar af ljósmyndavef keppninnar

Rögnvaldur Már Helgason keppti í 200 km opnum flokki karla. Mynd: KORDIAN / The Rift.

Ómar Örn Gunnarsson keppti í 200 km opnum flokki karla. Mynd: KORDIAN / The Rift.

Bjarni Jónasson keppti í 140 km opnum flokki karla. Mynd: Jón Halldór / The Rift.

Keppendur takast á við alls konar torfærur á leiðinni og stundum er betra að bera hjólið en að hjóla á því. Unnsteinn Jónsson keppti í 140 km opnum flokki karla. Mynd: Jón Halldór / The Rift.

Harpa Hermannsdóttir keppti í opnum flokki kvenna, 140 km vegalengd. Mynd: Jón Halldór / The Rift.

Þórdís Rósa Sigurðardóttir keppti í opnum flokki kvenna, 140 km vegalengd. Mynd: Jón Halldór / The Rift.

Anna Lilja Sævarsdóttir (til vinstri) keppti í 60 km opnum flokki kvenna. Mynd: The Rift.