Fara í efni
Íþróttir

Fótbolti á útivöllum – hjólreiðar í Hlíðarfjalli

Myndir: Ármann Hinrik.

Fótbolti og fjallahjólreiðar eru á dagskránni um komandi helgi. Akureyrarliðin þrjú í Bestu deildunum eiga öll leiki á útivöllum, Þór í Eyjum, Þór/KA gegn Þrótti og KA gegn Fram. Í Hlíðarfjalli verður hins vegar atgangur bæði á laugardag og sunnudag á fjallabrunshelgi Hjólreiðafélags Akureyrar.

LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST - hjólreiðar, fótbolti

Hjólreiðafélag Akureyrar býður upp á tvöfalda fjallabrunshelgi, bikarmót í fjallabruni bæði laugardag og sunnudag. Helstu upplýsingar um fjallabrunsmótið á laugardag:

  • Hjólað verður í „Downhill brautinni“ í Hlíðarfjalli. Brautarskoðun verður ekki formleg.
  • Mæting er við Strýtuskála í Hlíðarfjalli.
  • Ræsing er kl. 13.
  • Braut lokar kl. 12:30.

Keppt verður í einni braut í Hlíðarfjalli, „Downhill brautinni“, eins og hún er nefnd í upplýsingum um keppnina, en mætti allt eins kalla fjallabrunsbrautina. Í A-flokki eru farnar tvær ferðir í braut, fyrri ferðin er til þess að raða í rásröð fyrir seinni ferðina. Úrslit ráðast af bestu tímum í seinni ferð. Í öðrum flokkum eru hjólaðar tvær ferðir í brautinni og betri ferðin gildir til úrslita. Allir keppendur hafa tímatökuflögu sem þeir hafa leigt sjálfir eða keypt.

Allar upplýsingar um mótið: Fjallabrunshelgi HFA - Hlíðarfjall - 29.-30. ágúst | Netskraning.is

Spenna í Bestu deild kvenna

Lokaumferðirnar tvær í Bestu deild kvenna í knattspyrnu fyrir tvískiptingu deildarinnar verða spennandi því tvö neðstu lið deildarinnar, Valur og Víkingur, unnu sína leiki í síðustu umferð. Að loknum 18 umferðum mætast sex efstu liðin í lokahluta keppninnar um Íslandsmeistaratitilinn, en fjögur neðstu berjast um áframhaldandi veru í deildinni.

Þegar tveimur umferðum er ólokið fyrir tvískiptingu deildarinnar eru þrjú lið, Breiðablik, FH og Stjarnan, alveg örugg með sæti í efri hlutanum og ÍBV í nokkuð góðri stöðu þó tölfræðilega gæti liðið enn endað í 7. sætinu. Grindavík/Njarðvík og Þróttur eru sem stendur í 5. og 6. sætinu með 22 og 21 stig, en ekki örugg með sæti fyrir ofan strik. Raunar eiga öll liðin þar fyrir neðan, nema Víkingur, enn möguleika á að enda í einu af sex efstu sætunum.

Þór/KA sækir Þrótt heim í næstsíðustu umferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar. Þessi lið voru jöfn að stigum fyrir síðustu umferð, en Þróttur vann ÍBV í Eyjum á meðan Þór/KA tapaði heima fyrir Val og höfðu liðin því sætaskipti, Þróttur í 6. sætinu með 21 stig og Þór/KA í 7. sætinu með 18 stig.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 18. umferð
    Þróttarvöllur (AVIS-völlurinn í Laugardal) kl. 14
    Þróttur - Þór/KA

Þór/KA vann fyrri viðureign liðanna í deildinni í sumar, 2-0. 

Lokaumferðin, sem raunar er 10. umferð mótsins, verður spiluð sunnudaginn 6. september og þá sækir Þór/KA lið FH heim í Hafnarfjörðinn.

Litlu munar á neðstu liðum í Bestu deild karla

Þegar 20 umferðum af 22 í Bestu deild karla í knattspyrnu áður en deildinni verður tvískipt í sex efstu og sex neðstu er þetta öruggt: Víkingur, KR og Fram verða í efri hlutanum. ÍBV, FH, KA og Þór verða í neðri hlutanum. Til þess að komast upp í efri hlutann þurfa lið að ná að minnsta kosti 25 stigum þar sem ÍA situr nú í 6. sætinu með 25 stig. Næstum öruggt er að Breiðablik haldi sínu sæti í efri hlutanum því þó allt fari á versta veg myndi markatalan sennilega sjá til þess. Þá eru eftir Keflavík, ÍA, Stjarnan og Valur sem berjast um að verða fyrir ofan strik - tvö þessara liða munu ná því, tvö ná því ekki.

Hvað sem líður tvískiptingunni er ljóst að Akureyrarliðin þurfa að safna stigum í framhaldinu til að tryggja tilverurétt sinn í deildinni. Enn eru sex stig í pottinum fyrir tvískiptingu og 15 stig eftir hana þannig að enn á ýmislegt eftir að gerast, og út frá stöðutöflunni má auðvitað segja að meira þurfi að gerast hjá Akureyrarliðunum en liðunum fyrir ofan.

Þór mætir liðunum í 9. og 10. sæti

Tveir síðustu leikir Þórs fyrir tvískiptingu eru afar mikilvægir því þeir eru gegn liðunum í 9. og 10. sæti deildarinnar, ÍBV og FH. Þór sækir ÍBV heim í næstu umferð, en Eyjaliðinu hefur verið að fatast flugið að undanförnu, hefur aðeins náð einu stigi af síðustu 15 og tveimur stigum í síðustu sjö leikjum. Fyrir leikinn er ÍBV í 9. sætinu með 17 stig, aðeins hænufeti framar en Akureyrarliðin. Þór er í 12. sætinu með 15 stig.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 21. umferð
    Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum kl. 17
    ÍBV - Þór

Fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri um miðjan júní lauk með 4-1 sigri Eyjamanna. Bæði lið töpuðu á útivelli í síðustu umferð, Eyjamenn töpuðu 1-0 í Keflavík og Þór tapaði 4-2 fyrir Stjörnunni. 

Í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar tekur Þór á móti FH sunnudaginn 6. september.

SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST - fótbolti, hjólreiðar

Seinna fjallabrunsmótið sem Hjólreiðafélag Akureyrar stendur fyrir fer fram á sunnudag, en mótið er bikarmót í fjallabruni eins og mótið á laugardeginum.

Helstu upplýsingar um mótið:
  • Hjólað verður í „Gömlu Downhill brautinni“ í Hlíðarfjalli. Brautarskoðun verður ekki formleg.
  • Mæting er við Strýtuskála í Hlíðarfjalli.
  • Ræsing er kl. 13:00.
  • Braut lokað kl. 12:30.

Keppt verður í einni braut í Hlíðarfjalli, „Gömlu Downhill brautinni“ eins og hún er nefnd í upplýsingum um keppnina, en mætti allt eins nefna gömlu fjallabrunsbrautina. Í A-flokki eru farnar tvær ferðir í braut, fyrri ferðin er til þess að raða í rásröð fyrir seinni ferðina. Úrslit ráðast af bestu tímum í seinni ferð. Í öðrum flokkum eru hjólaðar tvær ferðir í brautinni og betri ferðin gildir til úrslita. Allir keppendur hafa tímatökuflögu sem þeir hafa leigt sjálfir eða keypt.

Allar upplýsingar um mótið: Fjallabrunshelgi HFA - Hlíðarfjall - 29.-30. ágúst | Netskraning.is

KA á liðin í 3. og 4. sæti eftir

Eins og fram kemur hér að ofan er KA eitt þeirra liða sem ekki á möguleika á að færa sig upp í efri hluta deildarinnar, en stigin eru jafn dýrmæt fyrir því í harðri baráttu í neðstu sætum deildarinnar. KA á eftir tvo erfiða leiki gegn liðum í efri hluta deildarinnar, Fram og Breiðabliki. 

KA sækir Fram heim í 21. umferðinni á sunnudag. Framliðið er í 3. sæti deildarinnar með 43 stig, en KA í 11. sætinu með 16 stig. Fram vann Breiðablik 4-3 í síðasta leik, en KA tapaði 3-5 heima fyrir KR.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 21. umferð
    Framvöllurinn (Lambhagavöllurinn í Úlfarsárdal) kl. 17
    Fram - KA

Fyrri leik KA og Fram sem fram fór á Akureyri um miðjan júní lauk með 4-3 sigri Fram.

Í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar tekur KA á móti Breiðabliki sunnudaginn 6. september.