Hjólreiðar, frjálsar, karfa og knattspyrna
Fjallabrun í Hlíðarfjalli og tveir útileikir í fótbolta er það helsta sem er á íþróttadagskránni á þessum laugardegi.
Knattspyrnuleikir helgarinnar verða öðruvísi en venjulega að því leyti að leikmenn munu ganga inn á völlinn í alls konar treyjum. Föstudaginn 4. september verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhaldstreyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning. Í öllum leikjum í Bestu deildum karla og kvenna dagana 28. ágúst til 1. september munu leikmenn og dómarar ganga inn á völlinn í treyju að eigin vali til að vekja athygli á verkefninu. KSÍ hefur því hvatt stuðningsmenn til að mæta tímanlega á völlinn. Þetta á meðal annars við leiki Akureyrarliðanna, sem eru reyndar allt útileikir; Þróttur-Þór/KA, ÍBV-Þór og Fram-KA.

Á vefsíðunni Treyjudagur.is er að finna nánari upplýsingar og þar er hægt að ganga frá fjárframlagi til styrktarfélagsins Börn með krabbamein. Það verður forvitnilegt að sjá eftir leiki helgarinnar í hvaða treyjum leikmenn mæta til stuðnings verkefninu.
Spenna í Bestu deild kvenna
Lokaumferðirnar tvær í Bestu deild kvenna í knattspyrnu fyrir tvískiptingu deildarinnar verða spennandi því tvö neðstu lið deildarinnar, Valur og Víkingur, unnu sína leiki í síðustu umferð. Að loknum 18 umferðum mætast sex efstu liðin í lokahluta keppninnar um Íslandsmeistaratitilinn, en fjögur neðstu berjast um áframhaldandi veru í deildinni.
Þegar tveimur umferðum er ólokið fyrir tvískiptingu deildarinnar eru þrjú lið, Breiðablik, FH og Stjarnan, alveg örugg með sæti í efri hlutanum og ÍBV í nokkuð góðri stöðu þó tölfræðilega gæti liðið enn endað í 7. sætinu. Grindavík/Njarðvík og Þróttur eru sem stendur í 5. og 6. sætinu með 22 og 21 stig, en ekki örugg með sæti fyrir ofan strik. Raunar eiga öll liðin þar fyrir neðan, nema Víkingur, enn möguleika á að enda í einu af sex efstu sætunum.
Þór/KA sækir Þrótt heim í næstsíðustu umferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar. Þessi lið voru jöfn að stigum fyrir síðustu umferð, en Þróttur vann ÍBV í Eyjum á meðan Þór/KA tapaði heima fyrir Val og höfðu liðin því sætaskipti, Þróttur í 6. sætinu með 21 stig og Þór/KA í 7. sætinu með 18 stig.
- Besta deild kvenna í knattspyrnu, 18. umferð
Þróttarvöllur (AVIS-völlurinn í Laugardal) kl. 16
Þróttur - Þór/KA
Þór/KA vann fyrri viðureign liðanna í deildinni í sumar, 2-0.
Lokaumferðin, sem raunar er 10. umferð mótsins, verður spiluð sunnudaginn 6. september og þá sækir Þór/KA lið FH heim í Hafnarfjörðinn.
Litlu munar á neðstu liðum í Bestu deild karla
Þegar 20 umferðum af 22 í Bestu deild karla í knattspyrnu áður en deildinni verður tvískipt í sex efstu og sex neðstu er þetta öruggt: Víkingur, KR og Fram verða í efri hlutanum. ÍBV, FH, KA og Þór verða í neðri hlutanum. Til þess að komast upp í efri hlutann þurfa lið að ná að minnsta kosti 25 stigum þar sem ÍA situr nú í 6. sætinu með 25 stig. Næstum öruggt er að Breiðablik haldi sínu sæti í efri hlutanum því þó allt fari á versta veg myndi markatalan sennilega sjá til þess. Þá eru eftir Keflavík, ÍA, Stjarnan og Valur sem berjast um að verða fyrir ofan strik - tvö þessara liða munu ná því, tvö ná því ekki.
Hvað sem líður tvískiptingunni er ljóst að Akureyrarliðin þurfa að safna stigum í framhaldinu til að tryggja tilverurétt sinn í deildinni. Enn eru sex stig í pottinum fyrir tvískiptingu og 15 stig eftir hana þannig að enn á ýmislegt eftir að gerast, og út frá stöðutöflunni má auðvitað segja að meira þurfi að gerast hjá Akureyrarliðunum en liðunum fyrir ofan.
Þór mætir liðunum í 9. og 10. sæti
Tveir síðustu leikir Þórs fyrir tvískiptingu eru afar mikilvægir því þeir eru gegn liðunum í 9. og 10. sæti deildarinnar, ÍBV og FH. Þór sækir ÍBV heim í dag, en Eyjaliðinu hefur verið að fatast flugið að undanförnu, hefur aðeins náð einu stigi af síðustu 15 og tveimur stigum í síðustu sjö leikjum. Mögulega vekur það vonir hjá stuðningsmönnum Þórs. Fyrir leikinn er ÍBV í 9. sætinu með 17 stig, aðeins hænufeti framar en Akureyrarliðin. Þór er í 12. sætinu með 15 stig.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 21. umferð
Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum kl. 17
ÍBV - Þór
Fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri um miðjan júní lauk með 4-1 sigri Eyjamanna. Bæði lið töpuðu á útivelli í síðustu umferð, Eyjamenn töpuðu 1-0 í Keflavík og Þór tapaði 4-2 fyrir Stjörnunni.
Í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar tekur Þór á móti FH sunnudaginn 6. september.
Hamrarnir í úrslitum 5. deildar karla
Úrslitakeppni 5. deildar karla í knattspyrnu hefst í dag. Þar eiga Akureyringar fulltrúa, lið Hamranna.
Liðunum í 5. deild var skipt í tvo átta liða riðla og unnu Hamrarnir sinn riðil með 34 stigum úr 14 leikjum, töpuðu aðeins tveimur leikjum og gerðu eitt jafntefli. Tvö efstu lið úr hvorum riðli mætast í úrslitakeppni 5. deildar.
Hamrarnir mæta Smára úr Kópavogi í undanúrslitum, en hin viðureignin er á milli Skallagríms og Stokkseyrar. Leikið er heima og að Heiman og sigurliðin mætast síðan í úrslitaleik um deildarmeistaratitil 5. deildar, en bæði fara upp um deild.
- 5. deild karla, undanúrslit
Fagrilundur gervigras í Kópavogi kl. 12
Smári - Hamrarnir
Seinni viðureignin er fram á Akureyri laugardaginn 5. september.
Fjallabrun í Hlíðarfjalli
Hjólreiðafélag Akureyrar býður upp á tvöfalda fjallabrunshelgi, bikarmót í fjallabruni bæði í dag og á morgun. Helstu upplýsingar um fjallabrunsmótið í dag:
- Hjólað verður í „Downhill brautinni“ í Hlíðarfjalli. Brautarskoðun verður ekki formleg.
- Mæting er við Strýtuskála í Hlíðarfjalli.
- Ræsing er kl. 13.
- Braut lokar kl. 12:30.
Keppt verður í einni braut í Hlíðarfjalli, „Downhill brautinni“, eins og hún er nefnd í upplýsingum um keppnina, en mætti allt eins kalla fjallabrunsbrautina. Í A-flokki eru farnar tvær ferðir í braut, fyrri ferðin er til þess að raða í rásröð fyrir seinni ferðina. Úrslit ráðast af bestu tímum í seinni ferð. Í öðrum flokkum eru hjólaðar tvær ferðir í brautinni og betri ferðin gildir til úrslita. Allir keppendur hafa tímatökuflögu sem þeir hafa leigt sjálfir eða keypt.
Allar upplýsingar um mótið: Fjallabrunshelgi HFA - Hlíðarfjall - 29.-30. ágúst.
Veðrið setti aðeins strik í reikning keppenda í gær því hætta varð við að opna lyftur í gær vegna aðstæðna í fjallinu. Mikið hefur rignt og reyndar einni verið slydda uppi í fjalli og brautin því mjög blaut og ekki möguleiki á að nýta gærdaginn til að taka æfingu í brautinni.
Akureyrarmót UFA og Kjarnafæðis
UFA stendur fyrir Akureyrarmóti í frjálsum íþróttum á Þórsvellilnum þar sem keppt er í öllum helstu greinum frjálsíþrótta í aldursflokkum 10-11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og 16 ára og eldri, ásamt þrautabraut fyrir níu ára og yngri. Mótið hófst í gær og verður fram haldið í dag.
Upplýsingar um mótið og tímasetningar greina er að finna á vef UFA - sjá hér.
Þrír á þrjá í Garðinum hans Gústa
Körfuknattleiksdeild Þórs stendur fyrir götukörfuboltamóti í tengslum við Akureyrarvöku. Mótið fer fram á körfuboltavellinum við Glerárskóla, Garðinum hans Gústaog hefst með keppni í ungmennaflokkum kl. 11.15. Keppni fullorðinna hefst kl. 12:45.
