Jón Gunnlaugur Sigurjónsson – lífshlaupið
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson fæddist á Akureyri 4. desember 1965. Hann lést í Glerárdal 16. júlí 2026.
Foreldrar hans eru Sigurjón Hilmar Jónsson, f. 1947, og Gunnur Jakobína Gunnarsdóttir, f. 1948. Þau skildu. Sigurjón er giftur Þóru Hjaltadóttur, f. 1951.
Systur Gulla eru Íris Björk f. 1969 og Birna Hrönn, f. 1972. Bróðir hans er Hilmar Þór, f. 1986. Stjúpsystir hans er Pálína f. 1970.
Eftirlifandi maki Gulla er Anna Sævarsdóttir, f. 1965. Foreldrar hennar eru Guðný Klara Hallfreðsdóttir, f. 1941, og Sævar Magnússon, f. 1936.
Börn Gulla og Önnu eru: 1) Sigurjón Hilmar, f. 1992, maki Halla Mjöll Stefánsdóttir, f. 1991, börn þeirra eru: Trausti Þeyr, f. 2023 og Freydís Anna, f. 2026. 2) Guðný Bára, f. 1994, maki Sigurgeir Þorsteinsson, f. 1999. 3) Arnar Logi, f. 1998, maki Daníel Kristinn Pétursson, f. 1997.
Gulli gekk í grunnskóla á Akureyri og stundaði nám við Verkmenntaskólann á Akureyri. Leið hans lá í Vélskóla Íslands þar sem hann útskrifaðist sem vélfræðingur.
Gulli var einn af stofnendum Kælismiðjunnar Frost, þar sem hann starfaði allt til hinsta dags. Í gegnum vinnuna ferðaðist hann um landið allt og allan heim. Gulli var vinamargur og þekkti fjöldan allan af fólki í gegnum starf sitt.
Síðustu ár hefur Gulli verið félagi í Björgunarsveitinni Tý á Svalbarðseyri. Hann brann mjög fyrir málefnum björgunarsveitarinnar og lagði óteljandi stundir í uppbyggingu starfsins.
Afabörn Gulla voru augasteinar hans og hafði hann unun af því að njóta samverustunda með þeim, sér í lagi á Blásölum, sem Gulli og Anna byggðu af mikilli alúð og kærleika árið 2016.
Útför Jóns Gulla fer fram í Akureyrarkirkju í dag, fimmtudag 6. ágúst 2026, klukkan 13.
Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson – lífshlaupið
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson