Fara í efni
Minningargreinar

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Í minningu góðs vinar og félaga.
 
Í dag þann 6. ágúst var Jón Gunnlaugur Sigurjónsson, eða Jón Gulli eins og hann var alltaf kallaður, borinn til grafar en hann lést þann 16. júlí.
 
Ef lýsa ætti Gulla í nokkrum orðum væru það orðin traustur, duglegur og ljúfur. Þegar Gulli hóf störf með okkur í Björgunarsveitinni Tý kom fljótt í ljós að við höfðum dottið í lukkupottinn. Frá degi eitt óð hann í öll verkefni af einstökum dugnaði og útsjónarsemi og við sáum að sannkallað ofurmenni hafði gengið til liðs við okkur. Það skipti engu máli hvaða verkefni þurfti að sinna eða leysa, Gulli mætti alltaf, mætti fyrstur og fór seinastur. Hann brann fyrir og vann mikið og óeigingjarnt starf fyrir björgunarsveitina og samfélagið allt.
 
Stórt skarð hefur verið höggvið í okkar hóp en eins og Gulli hefði viljað höldum við ótrauð áfram og leggjum okkar að mörkum við leit, björgun og slysavarnir og höldum þannig minningu okkar góða félaga og björgunarsveitarmanns á lofti.
 
Við vottum fjölskyldu Gulla, ættingjum, vinum og öllum þeim syrgja andlát hans okkar dýpstu samúðarkveðjur.
 
Kveðja frá öllum þínum vinum í björgunarsveitinni Tý

Steingrímur Björnsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
23. október 2026 | kl. 08:00

Steingrímur Björnsson

Vignir Már Þormóðsson skrifar
23. október 2026 | kl. 07:00

Steingrímur Björnsson – lífshlaupið

23. október 2026 | kl. 06:00

Steingrímur Björnsson

Gunnur Vignisdóttir skrifar
23. október 2026 | kl. 06:00

Eiríkur Bóasson

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. október 2026 | kl. 15:35

Eiríkur Bóasson

16. október 2026 | kl. 15:30