Fara í efni
Minningargreinar

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Elsku Gulli,

Það er skrýtið að sitja hér og minnast þín. Þegar ég hugsa til þín er þakklæti það fyrsta sem kemur upp í hugann. Þakklæti fyrir tímann sem við fengum saman.

Þú varst kannski ekki maður margra orða en traustari og umhyggjusamari mann er erfitt að finna. Líf okkar einkenndist af börnunum okkar, ferðalögum þínum í vinnunni og uppbyggingu. Núna síðast hér í Blásölum þar sem við byggðum okkur draumaheimilið.

Í seinni tíð áttu barnabörnin hug þinn allan, það er sárt til þess að hugsa að þau fái ekki meiri tíma með þér. Það verður hlutverk okkar sem eftir eru að segja þeim sögur af afa; nóg er til.

Þangað til síðar, ég elska þig.

Þín,

Anna

Steingrímur Björnsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
23. október 2026 | kl. 08:00

Steingrímur Björnsson

Vignir Már Þormóðsson skrifar
23. október 2026 | kl. 07:00

Steingrímur Björnsson

Gunnur Vignisdóttir skrifar
23. október 2026 | kl. 06:00

Steingrímur Björnsson – lífshlaupið

23. október 2026 | kl. 06:00

Eiríkur Bóasson

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. október 2026 | kl. 15:35

Eiríkur Bóasson

16. október 2026 | kl. 15:30