Fara í efni
Fréttir

Innilaugin er farin að taka á sig mynd

Nú er verið að flísaleggja innilaugina með ljósum flísum. Sundlaugargræni liturinn er horfinn og rýmið orðið bjartara og nútímalegra. Mynd: SNÆ

Framkvæmdir við innilaug Sundlaugar Akureyrar hafa tafist nokkuð en nú er farið að sjást betur hvernig nýja laugin mun líta út. Þetta segir Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar, sem segist þó forðast að gefa nákvæma opnunardagsetningu eftir að tímasetningar hafa áður gengið til baka.

„Núna er farin að koma góð mynd á þetta. Það er búið að flísaleggja upp á súlurnar og þeir segja að það sé fljótlegt að flísaleggja botninn,“ segir Gísli Rúnar.

Opnunardagsetning óákveðin

Innilaugin er sannarlega allt öðruvísi á að líta í dag en áður en framkvæmdir hófust því flísarnar sem er verið að leggja á rýmið eru ljósar og sundlaugargræni liturinn sem var svo einkennandi fyrir laugina er horfinn „Þetta er ljósara og nútímalegra útlit,” segir Gísli Rúnar sem telur að fólk verði ánægt með breytinguna.

Að sögn Gísla stefna múrarar að því að klára sitt verk fyrir páska en þá er þó enn ýmislegt eftir áður en hægt verður að opna laugina. Til dæmis þarf að tengja nýtt hreinsikerfi og síur, klórkerfi og annan tæknibúnað, auk þess sem það þarf að prufukeyra kerfið til að ganga úr skugga um að allt virki og að enginn leki sé til staðar. Gísli vill ekki nefna ákveðna opnunardagsetningu. „Ég er búinn að gefa svo oft dagsetningar sem hafa ekki staðist. Við skulum segja að vonandi verði þetta klárt fyrir næsta haust.“

Framkvæmdir í gangi síðan 2024

Innilaugin hefur verið lokuð síðan í nóvember 2024 og er því nú komið á annað ár sem framkvæmdir hafa staðið yfir með tilheyrandi tilfærslum á starfsemi hússins. Eins og akureyri.net hefur áður greint frá hefur sundkennsla fyrir grunnskóla verið færð í lendingarlaug rennibrautarinnar og segir Gísli að það hafi gengið vel. „Skólarnir hafa unnið mjög vel með okkur og sýnt mikinn sveigjanleika,“ segir hann. Hins vegar hafa sumir hópar sem nýtt hafa innilaugina þurft að leggja starfsemi sína í dvala þar sem takmarkað pláss hefur verið í öðrum laugum, svo fyrir þá verður sérlega gleðilegt þegar innilaugin opnar á nýjan leik.

Aðgengi að innilauginni hefur verið stórbætt, bakkar eru yfirfljótanlegir og þá er hægt að komast ofan í laugina á þessum rampi.

Tæknilegar endurbætur í Glerárlaug

Aðspurður út í hvort aðrar framkvæmdir séu fyrirhugaðar hjá sundlaugum Akureyrar segir Gísli að nýlega hafi rafmagnstafla sundlaugarinnar á Akureyri verið endurnýjuð og stækkuð til að mæta auknum tæknibúnaði og framtíðarþörfum. Á næstu misserum standi svo til að ráðast í tæknilegar endurbætur í Glerárlaug, meðal annars á hreinsibúnaði og loftræstikerfi. Um er að ræða framkvæmdir sem almenningur mun lítið taka eftir. Í Grímsey var sundlaugin lokuð hluta vetrar vegna viðhalds, meðal annars til að skipta um innrennslisstúta og mála laugina, en hún hefur nú verið opnuð aftur.