Nýuppgerð innilaug er þéttbókuð
Nýting innilaugar Sundlaugar Akureyrar hefur verið með eindæmum góð frá því að hún var opnuð á ný eftir umfangsmiklar endurbætur. Laugin er nánast fullbókuð frá morgni til kvölds á virkum dögum og lítið svigrúm er til að bæta við fleiri hópum.
„Nýting laugarinnar er með eindæmum góð,“ segir Gísli Rúnar Gíslason, forstöðumaður Sundlauga Akureyrar, og bætir við að nýting sé nokkuð meiri en fyrir framkvæmdir. Þar kunni þó að spila inn í eftirvænting eftir því að laugin yrði aftur tekin í notkun en margir hópar hafi verið að bíða eftir því að fá pláss fyrir sína starfssemi.

Fjölbreyttir tímar fara fram í innilauginni en laugin er alltaf opin fyrir almenning um helgar. Hún lokar þó alla jafna klukkustund fyrr en sundlaugasvæðið sjálft. Mynd: SNÆ
Fjölbreyttir tímar í innlauginni
Að sögn Gísla er innilaugin nánast samfellt í notkun á virkum dögum og lítið svigrúm til þess að bæta við tímum eins og er. Starfsemin er fjölbreytt en þar fer m.a. fram meðgöngusund, ungbarnasund, skólasund, sundleikfimi og vatnszumba. Þá hefur hluti þeirrar endurhæfingarstarfsemi sem áður fór fram í sundlauginni á Kristnesi nú verið fluttur í Sundlaug Akureyrar. Það hefur aukið enn frekar á eftirspurn eftir tímum í innilauginni. Gísli segir að við úthlutun á tímum í lauginni hafi að mestu verið byggt á fyrra fyrirkomulagi og þeim hópum sem áður höfðu þar fasta tíma. Að öðru leyti gildir í raun sú regla að fyrstur komi, fyrstur fái, þegar lausir tímar bjóðast.
Gísli segir að reglulega sé spurt hvenær fólk geti komið í innilaugina án þess að vera skráð á námskeið eða tilheyra ákveðnum hópi og upplýsir hann að það sé um helgar. „Við höfum haldið lauginni óbókaðri um helgar svo almenningur geti nýtt laugina einhvern tímann,“ segir hann. Þannig geta fjölskyldur með ung börn og aðrir sundlaugargestir nýtt innilaugina á laugardögum og sunnudögum. Hún lokar þó alla jafna klukkustund fyrr en sundlaugarsvæðið sjálft vegna þrifa.

Innilaugin fyrir endurbætur. Mynd: SNÆ
Almenn ánægja með endurbætur
Að sögn Gísla hafa viðbrögð sundlaugargesta við endurbótunum verið mjög jákvæð og segir hann að margir hafi sérstaklega haft orð á því hversu vel laugin líti út. Eins og gjarnan gerist þegar ný eða endurbætt mannvirki eru tekin í notkun hafi þó komið í ljós ýmis smáatriði sem þurfi að laga. Meðal annars sé unnið að fínstillingu loftræstingar og ýmsum frágangi. Til að mynda þurfi að endurnýja og lagfæra búningsaðstöðu starfsfólks, en breytingar á húsnæðinu vegna framkvæmdanna hafi kallað á tilfærslur.
Þá hafi komið fram ábendingar um að handrið vanti í innilaugina, en áður hafi notendur getað stuðst við laugarbakkann eða handrið sem þar var. „Við erum að skoða það að fá handriðið aftur ofan í,“ segir Gísli og undirstrikar að slíkur búnaður sé mikilvægur í laug sem meðal annars er notuð til endurhæfingar og æfinga. Hann segir að í heildina sé ástæða til að vera ánægður með framkvæmdina, þótt enn eigi eftir að ljúka nokkrum frágangsverkefnum.

Barnshafandi konur í þjálfun í innilauginni hjá Arnbjörgu K. Konráðsdóttur. Mynd: SNÆ
Þörf fyrir meira sundrými
Þrátt fyrir vel heppnaðar endurbætur leggur Gísli áherslu á að endurbæturnar hafi ekki skilað auknu sundrými og ljóst er að sundaðstaða á Akureyri sé fullnýtt. Skólasund og starfsemi sundfélaga taki eðlilega mikið pláss og á vinsælustu tímum dags geti almenningur þurft að sætta sig við takmarkað rými til sundiðkunar.
„Stundum er bara ein lína laus og ef 20 manns vilja koma og synda þá er þetta rosalega þröngt,“ segir hann og bætir við að starfsfólk reyni eftir fremsta megni að tryggja almenningi aðgang að sundbrautum en það sé ekki alltaf auðvelt þegar eftirspurnin sé hvað mest. Hann bendir á að öflugt starf sundfélaganna sé afar jákvætt en því fylgi jafnframt mikil þörf fyrir æfingaaðstöðu. Það vanti því almennt meira sundrými í bæjarfélagið, hvort sem það sé innandyra eða utan.
Nánar um innilaugina á morgun á akureyri.net.
- Á MORGUN – FRÁ MEÐGÖNGUSUNDI TIL HLJÓÐBAÐA Í INNILAUGINNI