Fara í efni
Mannlíf

Frá meðgöngusundi til hljóðbaða í innilauginni

Gong tónar óma um innilaugina í slökunartímunum hjá Arnbjörgu K. Konráðsdóttur, jógakennara og meistaranema í heilsuvísindum. Arnbjörg vinnur að lokaritgerð sinni og hefur verið að skoða kynna sér rannsóknir á hljóðmeðferð og mögulegri nýtingu hennar fyrir fólk með mismunandi þarfir. Mynd: SNÆ

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, jógakennari og meistaranemi í heilbrigðisvísindum, er hæstánægð með endurbætta innilaug Sundlaugar Akureyrar. Hún segir nýju aðstöðuna skapa kjöraðstæður fyrir slökun og vellíðan, en hún býður meðal annars upp á hljóðheilun í lauginni þar sem samspil heits vatns, mildrar hreyfingar og hljóðs veitir þátttakendum einstaka upplifun.

Eins og akureyri.net hefur áður fjallað um hefur innilaugin í Sundlaug Akureyrar tekið algjörum stakkaskiptum eftir gagngerar endurbætur og er laugin nú þegar svo gott sem fullnýtt undir ýmsa starfsemi.

Arnbjörg er ein af þeim kennurum sem nýta laugina undir sína tíma, en hún er bæði með vatnsþjálfun fyrir barnshafandi konur í lauginni sem og slökunartíma fyrir fólk eldra en 60 ára. „Það er svo mikilvægt að fólk hafi val um mismunandi tegundir hreyfingar og slökunar, ekki síst þeir sem eiga erfitt með hefðbundna líkamsrækt,“ segir hún.

Arnbjörg segist hafa mikinn áhuga á því hvernig hljóð getur haft áhrif á líðan fólks og segir spennandi að sameina hljóðupplifun og vatnsumhverfi en hún býður upp á hljóðbað í innilauginni með tónum frá kristalsskálum og gongi.  Mynd: SNÆ

Falleg heildaráhrif

Arnbjörg þekkir vel til aðstæðna í Sundlaug Akureyrar enda kenndi hún einnig í gömlu sægrænu innilauginni áður en ráðist var í endurbætur. Hún segir muninn á gömlu og nýju aðstöðunni mikinn, ekki síst þegar kemur að umhverfinu og þeirri upplifun sem laugargestir fá. Gamla laugin hafi sannarlega verið orðin lúin og aldurinn farinn að segja til sín en nú sé allt annað yfirbragð á rýminu. „Jarðlitirnir, nýjar flísar og hönnunin skapa rólegra og notalegra umhverfi. Heildaráhrifin eru svo falleg. Litatónarnir innandyra eru þægilegri fyrir augun en áður og eins gefur útsýnið úr gluggunum svo mikið,“ segir hún en frá lauginni blasa við tré og tjörn út um gluggana.

Auðvelt að stýra hitanum

Þá hælir Arnbjörg hitastýringunni í innilauginni en hitastigið á vatninu skiptir miklu máli þegar kemur að slökunartímunum í vatni. Þar sem þátttakendur dvelja lengi í kyrrstöðu í vatninu má vatnið ekki vera of kalt því þá á fólk erfiðara með að ná fullkominni slökun. Fyrir hvern tíma er hitastigið því hækkað í lauginni um 1-2 gráður. Arnbjörg segir að þar sem laugin sé passlega stór og djúp og vegna þess hve hitakerfið er fljótt að taka við sér þá henti innilaugin sérlega vel fyrir slökunartímana. „Nú fáum við upphitaða laug, sem er milli 34 og 35 gráðu heit, og það skilar sér rosalega vel,“ segir hún og bætir við að á meðan á endurbótum stóð fóru tímarnir fram í Glerárlaug en þar var ekki hægt að stýra hitastigi laugarinnar eins vel vegna vatnsmagns og stærðar. „Það er náttúrulega bara lúxus á Íslandi að hafa aðgengi að svona heitu vatni fyrir slökun. Og við getum leyft okkur þessa lengri slökun með einni til einni og hálfri gráðu meira. Það er algjör draumur í svona slökunartíma.“

Fullkomin slökun með aðstoð vatns og hljóðs. Tímarnir eru í boði í gegn um verkefnið Virk efri ár. Mynd: SNÆ

Gott fyrir þá sem glíma við verki

Slökunartímarnir, sem eru í boði í gegnum Virk efri ár, henta ekki bara þeim sem sækja í slökun heldur líka þeim sem glíma við eymsli í baki eða liðum eða hafa gengist undir aðgerðir á borð við liðskipti. Í vatninu sé auðveldara að finna þægilega líkamsstöðu þar sem flotkrafturinn léttir álaginu af líkamanum.

„Fólk finnur svo auðveldlega slökunarstöðu í vatninu. Það verður strax vöðvaslökun því vatnið heldur við líkamann,“ segir Arnbjörg en þátttakendur nota stuðningsbúnað undir höfuð og hné til að geta legið afslappaðir í vatninu. Arnbjörg segir tímana njóta mikilla vinsælda en að jafnaði mæti um tíu til tólf þátttakendur í hvert sinn. „Ég er rosalega ánægð og þau eru rosalega ánægð, þannig að það segir mér að það sé eitthvað rétt við þetta.“

Arnbjörg með kristalskálina sem gefur áhugaverða hljóðupplifun. 

Skapar hljóðbað í innilauginni

Sérstaða slökunartímanna felst meðal annars í því að Arnbjörg vinnur með hljóð og notar bæði gong og kristalskálar til að skapa svokallað hljóðbað. Hún stundar meistaranám í heilbrigðisvísindum með áherslu á endurhæfingu og vinnur nú að meistararannsókn sem tengist hljóðheiminum og möguleikum hljóðs í slökun og endurhæfingu. Arnbjörg segist hafa mikinn áhuga á því hvernig hljóð getur haft áhrif á líðan fólks og segir spennandi að sameina hljóðupplifun og vatnsumhverfi. „Mér finnst æðislegt að nota þetta hér í sundlauginni því þú færð pínulítið dempaðri upplifun og aukna jarðtengingu þegar þú ert í vatni.“

Hún segir sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu opnir margir eldri þátttakendur séu fyrir þessari nálgun. Sumir hafi áður stundað jóga eða hugleiðslu en aðrir séu að kynnast slíkri slökun í fyrsta sinn en meginmarkmiðið með tímunum sé að skapa ró fyrir hugann og hjálpa þátttakendum að beina athyglinni að líðandi stundu.

Talið berst nánar að náminu, en þar hefur Arnbjörg meðal annars verið að kynna sér rannsóknir á hljóðmeðferð og mögulegri nýtingu hennar fyrir fólk með mismunandi þarfir. „Margir þátttakendur virðast fá ákveðið skjól og djúpa hvíld í hljóðinu ef það er spilað rétt. Þeir upplifa meiri seiglu í daglegu lífi ef þeir fara í tíma. Mér finnst þetta áhugavert,“ segir Arnbjörg en leggur jafnframt áherslu á að mikilvægt sé að afla frekari þekkingar á því fyrir hverja slík meðferð geti hentað og hvenær hún eigi síður við.


Vatnsþjálfun fyrir barnshafandi konur er einnig kennd í innilauginni. Mynd:SNÆ

Viðhalda hreyfingu á meðgöngu

Auk slökunartímanna kennir Arnbjörg líka vatnsleikfimi fyrir barnshafandi konur. Þeir tímar fóru einnig fram í Glerárlaug á meðan framkvæmdir stóðu yfir en hafa nú að hluta flust aftur í innilaug Sundlaugar Akureyrar. Arnbjörg segir vatnsþjálfun geta verið sérstaklega góða leið til að viðhalda hreyfingu á meðgöngu. „Vatnið tekur þyngdina af og léttir á þannig að þú getur betur hreyft mjaðmir, hné og ökkla,“ segir hún. Markmiðið með tímunum sé ekki að auka þjálfunarálag á meðgöngunni heldur að hjálpa konunum að viðhalda styrk, liðleika og daglegri virkni. Hún segir einnig félagslega þáttinn mikilvægan. Konurnar fái tækifæri til að hittast, deila reynslu og mynda tengsl á meðan á meðgöngunni stendur. „Sumar hafa sagt við mig: Ég hélst góð út meðgönguna því ég bætti þessu við annað sem ég var að gera,“ segir Arnbjörg, sem hefur kennt sambærilega tíma bæði á Akureyri og í Reykjavík, og segir reynsluna sýna hversu miklu máli það geti skipt að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu fyrir þennan hóp.

Arnbjörg á sundlaugarbakkanum við gong hljóðfærið. 

Sjálf væri Arnbjörg alveg til í að vera með fleiri tíma í innilauginni í framtíðinni, eins og t.d. jóga í vatni „Ég hef alltaf verið að kenna jóga í vatni sem er svona mildara form af hefðbundnu jóga,“ segir hún. Fleiri tímar í innisundlauginni verða þó að bíða um sinn, enda laugin svo gott sem fullnýtt eins og stendur. Þá þarf Arnbjörg einnig að einbeita sér að meistararannsókninni sem hún stefnir að að ljúka næsta vor. Áhuginn á vatnsþjálfuninni er þó greinilega mikill. „Mér finnst rosalega gaman að vinna með fólki í vatni. Það er æðislegt og ég hlakka til að bjóða upp á nám því tengdu að nýju næsta vor,“ segir Arnbjörg að lokum.