Fara í efni
Umræðan

Ingibjörg er ljósið í myrkrinu

Um helgina fer ég á flokksþing Framsóknarflokksins. Ég ætla að kjósa nýjan formann sem getur rétt af kúrsinn eftir útreiðina í síðustu kosningum. Ég ætla að kjósa Ingibjörgu Isaksen og valið er auðvelt. Mótframbjóðandi hennar er varaformaður flokksins og hefur verið það síðustu tíu ár. Hún ber því fulla ábyrgð á stöðu flokksins ásamt formanni. Henni var hafnað í síðustu kosningum og féll af þingi. Formaður verður að sitja á Alþingi og taka þar þátt í þjóðmálaumræðu. Allt tal hennar um að það komi sér vel að formaður sé utan þings er í besta falli broslegt og veikburða tilraun til að skapa sér stöðu. Ég hef þekkt Ingibjörgu í mörg ár og veit hverjir kostir hennar eru. Hún er von flokksins til lengri tíma litið. Það mun taka töluverðan tíma að styrkja stöðu flokksins sem missti trúverðugleika með setu í afleitri ríkisstjórn í sjö ár. En Ingibjörg er ljósið í myrkrinu og hún brennur fyrir málefnum landsbyggðar. Ég skora á þingfulltrúa að styðja hana á sunnudaginn.

Jóhannes Gunnar Bjarnason er Framsóknarmaður

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00