Fara í efni
Umræðan

Hvernig byggjum við upp vinnustaði þar sem fólk dafnar?

Mikið hefur verið rætt um að heimsfaraldurinn hafi hraðað breytingum á vinnumarkaði. Nútíminn virðist kalla á meiri hraða, meiri sjálfstjórn og aukna hæfni til að standa sig á eigin forsendum. Á sama tíma búa fleiri einir, samskipti fara í vaxandi mæli fram í gegnum síma og skjái og í atvinnuauglýsingum er sífellt oftar óskað eftir fólki sem er framúrskarandi í samskiptum og getur unnið vel í teymum.

 

Þetta vekur eðlilegar spurningar. Hvernig þjálfum við samskiptahæfni í heimi þar sem sífellt meira fer fram í gegnum skjái? Hvernig byggjum við upp traust og samvinnu þegar margir vilja hafa hlutina á sinn hátt? Og hvernig sköpum við vinnustaði þar sem fólk nær að blómstra, ekki aðeins lifa af?

 

Jákvæð vinnustaðamenning byggir á því að fólk finni tilgang í starfi sínu, að samskipti einkennist af trausti og virðingu og að menningin styðji við uppbyggingu fremur en kulnun. Þar liggur kjarninn í hugmyndum Kim Cameron um jákvæða forystu.

 

Á námskeiðinu Jákvæð sálfræði í starfi og lífi hjá Símenntun Háskólans á Akureyri, sem hefst 8. apríl, verður farið yfir þessa nálgun með sérstaka áherslu á styrkleika, orku, merkingu og leiðtogafærni í daglegu lífi og starfi.

 

Jákvæð leiðtogafærni snýst ekki um að vera alltaf glaður eða líta fram hjá vanda. Hún snýst um að skapa aðstæður þar sem fólk þekkir sjálft sig betur, nýtir styrkleika sína markvisst og byggir upp tengsl, traust og merkingu í starfi.

 

Lögð verður áhersla á hagnýt verkfæri, umræður og verkefni sem nýtast beint í starfi og daglegu lífi. Námskeiðið er kennt á Zoom á miðvikudagskvöldum í sex vikur.

 

Námskeiðið hentar þeim sem vilja efla leiðtogahlutverk sitt, hvort sem þeir starfa sem stjórnendur eða vilja hafa jákvæð áhrif í eigin starfi og lífi.

 

  • Nánari upplýsingar og skráning eru á vef Símenntunar Háskólans á Akureyri:

Jákvæð leiðtogafærni í starfi og lífi

 

Hrefna Guðmundsdóttir er MA vinnu- og félagssálfræði og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði

Sjókvíaeldi við Eyjafjörð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:15

Þegar áhuginn vex hraðar en aðstaðan

Kristján H. Kristjánsson skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:10

ESB‑umræðan: Ótti, staðreyndir og upplýst ákvörðun

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Jaðarsetning eldri borgara?

Benedikt Sigurðarson skrifar
20. mars 2026 | kl. 19:00

Spörum okkur ekki til óbóta

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Sverre Jakobsson skrifa
19. mars 2026 | kl. 21:30

Mannhvelið: þar sem drengir verða karlmenn

Skúli Bragi Geirdal skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30