Gunnar Örn Rúnarsson – lífshlaupið
Gunnar Örn Rúnarsson fæddist á Akureyri 4. júlí 1956. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 27. maí 2026.
Foreldrar Gunnars voru hjónin Rúnar Heiðar Sigmundsson, f. 1933, d. 2023, og Helga Sigfúsdóttir, f. 1935, d. 2017. Systkini Gunnars eru Sigrún f. 1957, Sigmundur Ernir f. 1961 og Guðrún Sigfríð f. 1967.
Gunnar Örn kvæntist 22. september 1981 Bryndísi Valgarðsdóttur uppeldis -og menntunarfræðingi, kennara og skólastjóra, f. 17. júní 1958. Foreldrar hennar voru Valgarður Jón Eðvaldsson, f. 1935, d. 2016, og Friðrikka Emilsdóttir, f. 1937, d. 2017.
Börn Gunnars Arnar og Bryndísar eru: 1) Katrín Erna listmeðferðarfræðingur, f. 1985, gift Helga Vilbergi Helgasyni, f. 1984. Börn þeirra eru Vilji Helgason f. 2013, og Stígur Ás f. 2020. 2) Ásdís Björk sérnámslæknir í barna og unglingageðlækningum, f. 1996, trúlofuð Birki Einari Björnssyni, f. 1993. Börn þeirra eru Bríet f. 2022 og Flóki f. 2024.
Gunnar Örn fæddist á Gilsbakkavegi 1 og ólst upp á Brekkunni. Hann gekk í Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar og fór síðan í Iðnskólann á Akureyri þar sem hann lærði skipasmíði í Slippstöðinni. Síðar lærði hann einnig húsasmíði og var mikill hagleikssmiður.
Gunnar Örn starfaði lengst af sem húsasmiður, bæði sem verktaki og smiður á trésmíðaverkstæðum til ársins 2000 þegar hann tók við starfi umsjónarmanns fasteigna á Akureyrarflugvelli. Þeirri stöðu gegndi hann til ársins 2024 þegar hann lét af störfum vegna aldurs.
Golfíþróttin var Gunnari Erni mjög hugleikin og var hann virkur meðlimur í Golfklúbbi Akureyrar. Eins stundaði hann sjóstangaveiði í áratugi og var félagsmaður og stjórnarmaður í Sjóak til fjölda ára auk þess að hafa óbilandi áhuga á ensku knattspyrnunni og vera dyggur stuðningsmaður Manchester United.
Útför Gunnars Arnar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 12. júní kl. 13.00.
Gunnar Örn Rúnarsson
Gunnar Örn Rúnarsson
Áslaug Kristjánsdóttir
Áslaug Kristjánsdóttir