Fara í efni
Minningargreinar

Gunnar Örn Rúnarsson

Hinsta kveðja

Ég hef notið hlýrrar nærveru Gunnars mágs míns um langa hríð. Hann var alltaf traustur og umvefjandi og þurfti ekkert að hafa fyrir því að sýna mér hvað hann var heill í okkar samskiptum. Og hann mun alltaf standa mér nærri í þeim sannindum lífsins.

En hann fór alltof snemma. Við áttum eftir svo margar veislurnar sem hafa teiknað stærstu útlínur okkar daga. Og líka bara þöglu samvistirnar. Því þær voru líka svo stórar.

Svo varstu auðvitað stóri bróðir mannsins míns. Og sannur þar sem annars staðar. En takk fyrir allt. Og farðu í friði, þínum þekkta friði og ró.

Elín Sveinsdóttir

Steingrímur Björnsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
23. október 2026 | kl. 08:00

Steingrímur Björnsson

Vignir Már Þormóðsson skrifar
23. október 2026 | kl. 07:00

Steingrímur Björnsson – lífshlaupið

23. október 2026 | kl. 06:00

Steingrímur Björnsson

Gunnur Vignisdóttir skrifar
23. október 2026 | kl. 06:00

Eiríkur Bóasson

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. október 2026 | kl. 15:35

Eiríkur Bóasson

16. október 2026 | kl. 15:30