Fyrir hvað borgum við?

Opið bréf til stjórnar Svalbarðsstrandarhrepps
Við hjónin höfum í tæp 20 ár átt sumarbústað, eða svokallað frístundahús, í Heiðarbyggð í Vaðlaheiði, sem heyrir undir Svalbarðseyri. Eftir ólestur í sorphirðumálum fyrstu árin kom sveitarstjórnin fyrir tveimur sorpgámum við Varðgjárafleggjarann sem þjónaði bæði Heiðarbyggð og Kotabyggð. Þótt nokkurn spöl var að fara með ruslið, voru þessir gámar vel þegnir og þjónuðu okkur vel í meira en 10 ár.
Þegar við komum norður í bústaðinn í síðustu viku komumst við að því okkur til mikillar hrellingar að gámarnir höfðu verið fjarlægðir og fólki vísað á gámastöð á Svalbarðseyri í staðinn. Þangað er um 10 mínútna akstur auk þess sem stöðin er bara opin þrjá dagsparta í viku. Aðspurð sagði sveitarstjórinn að sveitarstjórnin hefði tekið þessa ákvörðun vegna slæmrar umgengni og kostnaðar við rekstur gámanna.
Hvað slæma umgengni varðar er með nútímatækni lítið mál að vakta gámana með myndavélum og sekta þá sem fara ekki eftir reglum, en ljóst er að fólk kemur ekki með stærri hluti þangað gangandi.
Hvað kostnaðinn varðar skal því haldið til haga að í ár borgum við ríflega 400 þúsund krónur í fasteignagjöld fyrir rúmlega 50 fermetra bústað, eða næstum jafn mikið og fyrir stóra íbúð í Reykjavík. Fyrir þau gjöld fengum við afnot af fyrrnefndum sorpgámum auk þess sem sveitarfélagið tæmir rotþrærnar á svæðinu. Nú hefur sveitarstjórnin semsé einhliða og án umræðu við bústaðaeigendur ákveðið að hætta að veita okkur stóran hluta þeirrar þjónustu sem við nutum og greiddum fyrir. Miðað við fjölda bústaða á svæðunum tveimur rukkar Svalbarðsstrandarhreppur okkur um tugi milljóna króna á ári og veitir okkur nánast enga þjónustu.
Sveitarfélagið tekur engan þátt í viðhaldi vega á svæðinu né snjóruðningi, eða veitir okkur nokkra aðra þjónustu í dag en þá að tæma rotþrærnar. Við sem eigum frístundahús nýtum ekki innviði Svalbarðseyrar né þjónustu þar eins og skóla eða leikskóla. Mér finnst helvíti bratt að borga yfir 400 þúsund á ári fyrir tæmingu á sameiginlegri rotþró.
Um leið og ég fer fram á að sveitarstjórnin endurskoði þessa ákvörðun og komi gámunum fyrir á ný vil ég fá svör við eftirfarandi spurningum:
Á hvaða forsendum var ákveðið að fjarlægja sorpgámana?
Hver var kostnaðurinn við að reka sorpgámana tvo?
Hvað greiða eigendur frístundahúsa í Vaðlaheiði samtals í fasteignagjöld?
Hvaða þjónustu fáum við fyrir þau?
Adolf Ingi Erlingsson er eigandi frístundahúss í Vaðlaheiði


Til varnar séra Friðriki

Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan

Tekin verði upp utanríkisstefna ESB

Sumarið sem kom á óvart
