Fara í efni
Umræðan

Friðum Eyjafjörð

Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, hefur lýst því yfir að framkvæma skuli burðarþolsmat fyrir Eyjafjörð vegna mögulegrar sjókvíaeldisstarfsemi. Verði burðarþolsmatið samþykkt gæti sjókvíaeldi hafist í Eyjafirði. Einhver hluti íbúa við fjörðinn sáttur, annar hluti ósáttur. Við höfum mörg hver fylgst með baráttu Seyðfirðinga í gegnum árin, hún hefur verið strembin og þar á að koma upp sjókvíaeldi í óþökk þorra íbúa. Óháð skoðanamun ber okkur skylda til að standa vörð um náttúruauðlindir okkar, því þær eru undirstaða samfélagsins hér við fjörðinn.

Fyrir fimm árum samþykkti meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar að beina því til þáverandi sjávarútvegsráðherra að Eyjafjörður yrði friðaður fyrir sjókvíaeldi. Tillagan kom frá oddvita Sjálfstæðisflokksins og naut víðtæks stuðnings innan bæjarstjórnar. Árið 2023 lagði matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, fram frumvarpsdrög um lagareldi þar sem gert var ráð fyrir að bæði Eyjafjörður og Öxarfjörður yrðu formlega friðaðir og eldi laxfiska bannað. Umræðan um sjókvíaeldi í Eyjafirði er ekki ný – í mörg ár hefur verið unnið að undirbúningi slíkrar starfsemi þrátt fyrir viðvarandi andstöðu íbúa.

Undanfarin ár hefur töluverður vöxtur verið í ferðaþjónustu í Eyjafirði. Inn Eyjafjörð siglir töluverður fjöldi skemmtiferðaskipa hvert sumar, eins hefur verið vöxtur í hvalaskoðun við fjörðinn. Millilandaflug er að festa sig í sessi og töluverð uppbygging er á gistirýmum á svæðinu. Hingað kemur fólk til að upplifa ósnortna náttúru og þar liggja vaxtarmöguleikar svæðisins, ekki í stóriðju á borð við sjókvíaeldi sem hefur óafturkræf áhrif á náttúru og umhverfi. Reynslan sýnir að laxeldi í sjókvíum hefur valdið alvarlegum skaða á vistkerfum og haft mjög skaðleg áhrif á villta stofna lax og göngusilungs.

Tæplega 70% landsmanna eru á móti sjókvíaeldi samkvæmt könnun frá 2024. Eingöngu 21% íbúa í Norðausturkjördæmi eru jákvæð í garð sjókvíaeldis. Sköpum frið um Eyjafjörð. Friðum fjörðinn fyrir sjókvíaeldi– og leyfum náttúrunni að njóta vafans.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir er bæjarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00