Fara í efni
Fréttir

„Félagið okkar hefur dæmt sig úr leik“

Samherjatogarar á Pollinum við Akureyri. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Sautján skipstjórnarmenn hjá Samherja átelja Félag skipstjórnarmanna harðlega, vegna þess að félagið kærði eigin félagsmann til lögreglu í kjölfar hins fordæmalausa máls í togaranum Júlíusi Geirmundssyni sem mikið hefur verið í fréttum undanfarið, eftir að skipið var áfram að veiðum þrátt fyrir að hluti áhafnarinnar smitaðist af Covid 19. Segja þeir félagið hafa dæmt sig úr leik í umræðunni.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu Samherja í dag.

„Við viljum byrja á því að taka það skýrt fram að við ætlum ekki að leggja mat á mál skipstjóra Júlíusar Geirmundssonar og áhafnar hans. Það mál – sem er fordæmalaust á fordæmalausum tímum – þarfnast vissulega ítarlegrar skoðunar, því svona nokkuð má aldrei gerast aftur. Málið er í sínum rétta farvegi – í sjóprófum – og við bíðum niðurstöðu þeirra.

Það sem að okkur snýr er hins vegar sú staðreynd að umræðan í kringum þetta mál hefur skaðað ímynd sjómannastéttarinnar í landinu, bæði yfirmanna og undirmanna. Það er ekki síður afleitt að okkar eigið félag, Félag skipstjórnarmanna, lagðist svo lágt að kæra eigin félagsmann til lögreglu vegna framagreinds máls og er því beinn aðili að því. Fyrir vikið erum við skipstjórnarmenn án málsvara og stéttarfélags um þessar mundir um allt það er varðar aðbúnað og vinnulag um borð í fiskiskipum. Félagið okkar hefur dæmt sig úr leik í þeirri umræðu. Það hlýtur að vera einsdæmi að stéttarfélag fari þá leið að kæra eigin félagsmann og einungis einn eða tveir menn hjá félaginu komi að þeirri ákvörðun. Öllum er ljóst að mál Júlíusar Geirmundssonar hefði alltaf farið þá leið sem það fór, þ.e. til lögreglu og svo í sjópróf. Stéttarfélög annarra í áhöfninni hefðu örugglega farið þá leið til að leita réttar skjólstæðinga sinna. Félag skipstjórnarmanna tók af þeim „ómakið“ af einhverjum undarlegum ástæðum.“

Í yfirlýsingunni segja Samherjamenn að umfjöllum í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum undanfarið gefi kolranga mynd af raunveruleikanum til sjós. „Varpað hefur verið upp þeirri mynd að hreinlega sé farið illa með menn til sjós og að þeir séu réttlitlir eða réttlausir um borð. Slíkar rangfærslur er eitthvað sem við getum ekki sætt okkur við, því ekkert er fjær sanni.“

Yfirmaður rekur engan til vinnu

Þeir segja enn fremur: „Þú færð engu áorkað á íslenskum vinnumarkaði árið 2020 með hótunum eða hervaldi, hvorki í landi né á sjó. Lögfræðingur stéttarfélaga sjómanna og þar með talið lögfræðingur Félags skipstjórnarmanna ýjaði samt að því í sjónvarpsviðtali mánudaginn 23. nóvember sl. að að sú væri raunin til sjós. Það er fjarstæða.“

Þeir segja líf sjómanna alltaf verða öðruvísi en þeirra sem vinna í landi. „Við erum fjarri sjúkrahúsi og læknisþjónustu, slökkviliði og lögreglu. Ef eitthvað bjátar á þurfum við oft að treysta á okkur sjálfa til að leysa þau vandamál sem upp koma. Það reynum við alltaf að gera eftir bestu vitund, með öryggi áhafnar og skips að leiðarljósi. Og það gerum við með allri þeirri aðstoð sem okkur býðst. Sú aðstoð fer stöðugt vaxandi, þökk sé örum tækniframförum og markvissri uppbyggingu fjarheilbrigðisþjónustu. Okkur er mjög umhugað um heill og heilbrigði allra í áhöfninni. Áhöfnin er ein órofa liðsheild. Hótanir og hervald koma þar hvergi við sögu.“

Nánar á heimasíðu Samherja - sjá HÉR