Samherji: 100 milljónir í sjóð gegn fíknivanda
Samherji stendur að stofnun nýs átakssjóðs, Samheldni, sem ætlað er að standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum í meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi. Fyrirtækið mun leggja fram 20 milljónir króna á ári á næstu fimm árum og vonast til að fá fleiri fyrirtæki með í sameiginlegt átak. Frá þessu er sagt í frétt á heimasíðu Samherja.
Stefnan er að fá fleiri úr atvinnulífinu til liðs við verkefnið þannig að sjóðurinn gæti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja bráðnausynlegra átaksverkefna, að því er fram kemur í fréttinni. Nú þegar hafa þrjú stór verkefni verið valin og munu þau njóta stuðnings úr sjóðnum með það að markmiði að gjörbreyta aðstöðu og þjónustu við fólk í fíknivanda. Þetta eru SÁÁ, Hlaðgerðarkot og Meðferðarheimilið Krýsuvík. Nánar er fjallað um þau verkefni í frétt Samherja.
Vilja styrkja með formlegri og víðtækari hætti en áður
„Við vildum koma inn með myndarlegum hætti en því miður er þörfin svo gríðarleg að fleiri þurfa að leggjast á árarnar,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, meðal annars. „Í rekstri okkar höfum við í gegnum tíðina fundið hversu djúpstæð, hryggileg og eyðileggjandi fíknivandamál eru og reynt að bregðast við með því að leggja starfsfólki okkar og fjölskyldum þeirra lið þegar þau hafa lent í slíkum öngstrætum. Í nálægðinni við starfsfólkið finnum við hvað þessi mál eru átakanleg og hversu harkalega þau reyna á alla sem þeim tengjast. Við viljum nú gera þetta með formlegri og víðtækari hætti en við höfum gert hingað til og efna til sameiginlegs átaks til að takast hraustlega á við vandann. Við höfum góðar vonir um að við fáum breiðan almennan stuðning og öflug fyrirtæki og fólk í íslensku atvinnu- og þjóðlífi til þátttöku með loforðum um framlög næstu fimm árin,“ segir Baldvin enn fremur.
Stjórn og söfnunarráð
Stjórn Samheldni skipa þau Anna María Kristinsdóttir, mannauðsstjóri Samherja, Einar Logi Vignisson, framkvæmdastjóri RÚV sölu, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri ÚA, og Valgeir Magnússon, stjórnarformaður PiparsTBWA, sem verður jafnframt stjórnarformaður. Varamaður er Marta María Winkel Jónasdóttir.
Þá er einnig stofnað söfnunarráð, en það skipa þau Baldvin Þorsteinsson, Einar Logi Vignisson, Svanhildur Þórsteinsdóttir, Patricia Bono, Björgvin Páll Gústavsson, Helen Breiðfjörð og Valgeir Magnússon.
Upplýsingar um samtökin og starfsemi þeirra má finna á vef þeirra, samheldni.is.