Fara í efni
Fréttir

Bláu Samherjaskipin öll samtímis í heimahöfn

Myndir: Þorgeir Baldursson
Þrjú skip Samherja eru blá, Kaldbakur EA 1, Harðbakur EA 3 og Snæfell EA 310, og svo skemmtilega vill að öll eru nú samtímis í heimahöfn; eru bundin við bryggju á Akureyri. Slíkt er sjaldgæft, nema þá helst á lögbundnum frídögum sjómanna, segir á Facebook síðu fyrirtækisins.
 
Kaldbakur kom til löndunar í gærkvöld með fullfermi. Snæfell kom sömuleiðis til löndunar í gær, eftir 28 daga veiðiferð, og Harðbakur var fyrir í landi. Þorgeir Baldursson sendi drónann á loft í gærkvöldi til að fanga bláu skipin við bryggju.