Fréttir
Dýptarmælirinn sýndi ekkert líf í sjónum
12.08.2026 kl. 18:30
Mynd af Facebook síðu Samherja
Áhöfn togara Samherja, Kaldbaks EA 1, fylgdist með sólmyrkvanum í dag frá Halamiðum, norð-vestur af Ísafjarðardjúpi. Skipstjórinn segir að dýptarmælirinn hafi ekki sýnt neitt líf í sjónum rétt fyrir sjálfan almyrkvann og allt þar til birti á nýjan leik.
Veiðiferð Kaldbaks hófst í gær og stefnan sett vestur, eins og venjulega á þessum árstíma. Oddur Jóhann Brynjólfsson skipstjóri segir að auk hefðbundins kosts hafi að þessu sinni verið bætt við sólmyrkvagleraugum.
„Við gerðum hlé á veiðum og fylgdumst með þessu magnaða náttúrufyrirbrigði sem náði hámarki um klukkan korter í sex. Fæstir okkar koma til með að upplifa þetta aftur á lífsleiðinni, þótt skyggnið hefði vissulega mátt vera betra,“ segir Oddur Jóhann á Facebook síðu Samherja. „Hérna er þoka en það dimmdi vel í um tvær mínútur og birti á nýjan leik hröðum skrefum. Ég var í brúnni og tók eftir því að dýptarmælirinn sýndi ekkert líf í sjónum rétt fyrir sjálfan almyrkvann og þannig var það þar til birti á nýjan leik.“
