Fara í efni
Umræðan

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Margt hefur verið rætt og ritað um einmanaleika síðustu vikur og mánuði enda málefnið mikilvægt og knýjandi. Fjöldi rannsókna sýna fram á að vandinn eykst og nýjustu tölur embættis landlæknis sýna að einmanaleiki hjá fullorðnu fólki á Norðurlandi mælist 14,5% og hjá framhaldsskólanemum 19%.

Ein leið til að vinna bug á eigin einmanaleika er að taka þátt í sjálfboðnu starfi. Rannsóknir hafa sýnt að það að vera góður við aðra hefur sterkustu jákvæðu augnabliksáhrifin á vellíðan.

Vinaverkefni Rauða krossins snúast um að tengja fólk saman, þar sem sjálfboðaliðar gefa klukkustund á viku af tíma sínum. Verkefnið felst ekki í stórum aðgerðum eða flóknum verkefnum, heldur í einföldum augnablikum sem skipta miklu máli. Kaffibolli, göngutúr eða símtal getur haft djúpstæð áhrif á þann sem fær stuðninginn.

Einn sjálfboðaliði orðaði það svona: „Ég held að þetta sé mjög gefandi fyrir okkur báðar. Það hefur myndast einstakt samband. Þetta er eitt af því sem gefur mér góðan tilgang…“

Sjálfboðaliðar í verkefninu fá góða þjálfun áður en störf hefjast, sem og reglulega eftirfylgni, stuðning og fræðslu. Ánægja þátttakenda er mikil en 98% sjálfboðaliða mæla með þátttöku í verkefninu. Það þarf ekki alltaf mikið til að hafa áhrif.

Við sem samfélag erum svo sannarlega ekki ráðalaus gegn einmanaleikanum en við þurfum að taka skrefin og nýta tækifærin sem til staðar eru til að tengjast hvert öðru.

Á mánudaginn (2. nóvember) klukkan 17-18:30 verður námskeið fyrir nýja sjálfboðaliða í heimsóknaverkefnum hjá Rauða krossinum. Engin skuldbinding um þátttöku í verkefninu felst í því að mæta á námskeiðið heldur er það gott tækifæri til að kynna sér um hvað heimsóknavinir snúast.

Hér getur þú skráð þig til þátttöku: https://raudikrossinn.is/um-okkur/namskeid-og-vidburdir/skraning-a-namskeid/?courseId=a12Tu00000dfThBIAU

Sóley Björk Stefánsdóttir er verkefnastjóri í Eyjafjarðardeild Rauða krossins

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00