Fréttir
Erindi um sorg og sorgarúrvinnslu
25.01.2026 kl. 17:00
Sindri Geir Óskarsson mun flytja erindi um sorg og sorgarúrvinnslu eftir andlát í Glerárkirkju á morgun, mánudaginn 26. janúar kl. 17:30.
Syrgjendum stendur til boða að taka náinn aðstandanda með sér á erindið ef þeir kjósa, að því er segir í tilkynningu. „Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið til að tryggja pláss og er hámarksfjöldi í hvert skipti,“ segir þar.
- Skráning fer fram hér. Mánaðarleg erindi eru á Akureyri á vegum Sorgarmiðstöðvar. Tekið er fram í tilkynningu að erindið á morgun sé einungis ætlað fullorðnum.
Erindið er gjaldfrjálst en þau sem vilja styrkja Sorgarmiðstöð geta gert það hér