Fara í efni
Minningargreinar

Dröfn Þórarinsdóttir

Í dag blaktir fáni í hálfa stöng við Hamar, félagsheimili Íþróttafélagsins Þórs.

Það gerum við til að minnast Drafnar Þórarinsdóttur sem jarðsungin verður frá Akureyrarkirkju klukkan 13.00 í dag.

Dröfn var mikill Þórsari alla tíð og hún og maður hennar Sigurður Friðriksson sem lést fyrir nokkrum árum, voru dyggir stuðningsmenn félagsins og öll börn þeirra æfðu og léku með félaginu á sínum yngri árum.

Í dag eru það niðjar þeirra Drafnar og Sigurðar sem mynda stóran hóp yngri iðkenda félagsins.

Dröfn var dugleg að hjálpa til við ýmislegt er féll til og var m.a í kvennadeild Þórs sem svo sannarlega lét til sín taka á árum áðum og bakkelsið sem þessar konur framreiddu gleymist aldrei. Þar var Dröfn í framvarðarsveit.

Dröfn var fædd þann 19. ágúst árið 1947 og lést þann 10. júlí síðastliðinn.

Um leið og Íþróttafélagið Þór þakkar árin öll og samfylgdina alla tíð sendum við öllum ástvinum Drafnar okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Drafnar Þórarinsdóttur.

Steingrímur Björnsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
23. október 2026 | kl. 08:00

Steingrímur Björnsson

Vignir Már Þormóðsson skrifar
23. október 2026 | kl. 07:00

Steingrímur Björnsson

Gunnur Vignisdóttir skrifar
23. október 2026 | kl. 06:00

Steingrímur Björnsson – lífshlaupið

23. október 2026 | kl. 06:00

Eiríkur Bóasson

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. október 2026 | kl. 15:35

Eiríkur Bóasson

16. október 2026 | kl. 15:30