Birgir Ágústsson
Við bræðurnir og nokkrir úr vinahópnum höfum haft þá reglu til fjölda ára að hittast fyrir hádegi virka daga í athvarfi okkar í gamla útvarpshúsinu við Fjölnisgötu til að drekka kaffi og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Þetta hafa verið okkur öllum ómetanlegar stundir. Undir lok síðasta árs kom Biggi æ sjaldnar í Fjölnisgötuna. Heilsan hafði daprast. Á nokkrum vikum dvínaði lífsneistinn, húmorinn og krafturinn sem hafði einkennt hann alla tíð. Inn á Dvalarheimilið Hlíð fluttu þau hjónin fyrir nokkrum vikum en tími þeirra saman þar varð ekki langur. Stundaglasið var tæmt.
Að sjálfu leiðir var Biggi okkur afar náinn enda brölluðum við ýmislegt saman til fjölda ára í rekstri Hölds/Bílaleigu Akureyrar og utan hins daglega amsturs var brugðið á leik á ýmsan hátt, hvort sem það var skautaíþróttin, skallaboltinn eða eitthvað annað. Verkfræðingurinn Biggi var framkvæmdamaðurinn í rekstri Hölds, hann hélt utan um alla húsaumsýslu á okkar vegum, teiknaði hús og endurhannaði rými. Þar var hann á heimavelli. Og hann var líka lykilmaður í samningagerð, ekki síst á erlendri grundu þar sem kom til kasta tungumálamannsins Bigga. Hann var sérlega naskur og útsjónarsamur samningamaður.
Við syrgjum og söknum en þegar leiðir skilja er okkur efst í huga þakklæti til Bigga bróður fyrir allt það góða sem hann skilur eftir sig. Arfleifð hans sést m.a. í ótal byggingum á Akureyri sem hann teiknaði en umfram allt minnumst við hans sem sérlega hjartahlýrrar manneskju sem lét sér annt um allt sitt fólk og vinina alla. Vertu kært kvaddur Biggi bróðir og takk fyrir allt.
Eftirlifandi eiginkonu og mágkonu okkar, Ingunni Þóru Baldvins, börnum þeirra og öllum ástvinum sendum við kærar samúðarkveðjur.
Vilhelm og Skúli Ágústssynir
Jón Hólmgeirsson
Jón Hólmgeirsson – lífshlaupið
Jón Hólmgeirsson
Páll Halldór Jónsson