Fara í efni
Fréttir

Bernharð Haraldsson – minningar

Útför Bernharðs Sigursteins Haraldssonar, fyrsta skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri, verður frá Akureyrarkirkju í dag, föstudaginn 13. júní, kl. 13.00. Minningarathöfn var í Digraneskirkju í Kópavogi 30. apríl.

Bern­h­arð fædd­ist í Árnesi í Gler­árþorpi 1. fe­brú­ar 1939 og ólst upp á Ak­ur­eyri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 20. maí.

For­eldr­ar hans voru Þór­björg Sig­ur­steins­dótt­ir, hús­freyja og verka­kona, ættuð úr Hörgár­dal, og Har­ald­ur Norðfjörð Ólafs­son frá Brekku í Gler­árþorpi, sjó­maður og neta­gerðarmaður.

Bernharð var skipaður skólameistari Verkmenntskólans á Akureyri 1. júní 1983 en skólinn var formlega stofnaður ári síðar, 1. júní 1984, og settur í fyrsta skipti 1. september það ár. Bernharð gegndi embætti skólameistara til 1999.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Bern­h­arðs er Ragn­heiður Hans­dótt­ir, tann­lækn­ir og sér­fræðing­ur í bit­lækn­ing­um. Þau gengu í hjóna­band 1966 og eignuðust fjög­ur börn: Har­ald, Hans Braga, Arn­dísi og Þór­dísi. 

Bernharð Haraldsson – lífshlaupið

Eftirtalin skrifa minningargrein um Bernharð á Akureyri.net í dag. Smellið á nöfn höfunda til að lesa grein.

Hjalti Jón Sveinsson

Gunnar Maríu Jónsson og Svanhildur Daníelsdóttir

Aðalheiður Steingrímsdóttir og Þröstur Ásmundsson