Fara í efni
Minningargreinar

Bernharð Haraldsson – lífshlaupið

Bernharð Sigursteinn Haraldsson fæddist í Árnesi í Glerárþorpi 1. febrúar 1939. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 20. maí 2025.

Foreldrar hans voru Þórbjörg Sigursteinsdóttir frá Vindheimum í Hörgárdal, húsfreyja og verkakona á Akureyri, og Haraldur Norðfjörð Ólafsson frá Brekku í Glerárþorpi, sjómaður og netagerðarmaður á Akureyri.

Eftirlifandi eiginkona Bernharðs er Ragnheiður Hansdóttir, f. 18.7.1942 í Eyjum í Kjós, tannlæknir og sérfræðingur í bitlækningum. Foreldrar hennar voru Hans Guðnason frá Eyjum í Kjós, bóndi í Eyjum og á Hjalla, og kona hans Unnur Hermannsdóttir frá Glitstöðum í Norðurárdal, kennari og bóndi á Hjalla.

Bernharð og Ragnheiður gengu í hjónaband 22.10. 1966. Börn þeirra eru:

1) Haraldur, f. 12.4. 1968, dósent við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, kvæntur Hönnu Óladóttur, f. 3.5. 1968, framhaldsskólakennara. Börn þeirra eru Freysteinn, f. 1998, d. 2000, Þóroddur, f. 1999, d. 2001, Hildigunnur, f. 2002, og Örnólfur, f. 2002.

2) Hans Bragi, f. 12.9. 1972, sjálfstætt starfandi, kvæntur Li Hua, f. 23.8. 1976. Börn þeirra eru Freydís Xuan, f. 2002, og Sædís Hui, f. 2006.

3) Arndís, f. 4.11. 1977, hjúkrunarfræðingur á Landspítala.

4) Þórdís, f. 4.11. 1977, sérfræðingur hjá Arionbanka. Sonur hennar er Sigursteinn Norðfjörð, f. 2018.

Bernharð lauk stúdentsprófi frá MA 1959. Hann nam þýsku við háskólann í Freiburg 1959-1960 og lauk BA-prófi í landafræði og mannkynssögu og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá HÍ 1966. Þá stundaði hann nám í hagrænni landafræði við Kaupmannahafnarháskóla veturinn 1988-1989. Bernharð kenndi við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1966-1967, Gagnfræðaskóla Akureyrar 1960-1962 og 1967-1981, var yfirkennari þar 1981-1982 og skólastjóri 1982-1983.

Samhliða kennslu var Bernharð leiðsögumaður með þýska ferðamenn.

Bernharð var skipaður skólameistari Verkmenntskólans á Akureyri 1. júní 1983 en skólinn var formlega stofnaður ári síðar, 1. júní 1984, og settur í fyrsta skipti 1. september það ár. Bernharð vann öt­ul­lega að stofn­un hins nýja skóla og upp­bygg­ingu verk­mennt­un­ar á Ak­ur­eyri. Und­ir stjórn Bern­h­arðs og með fulltingi Hauks Ágústs­son­ar og Adams Óskars­son­ar var VMA frum­kvöðull í fjar­kennslu. Bernharð gegndi embætti skólameistara til 1999.

Bernharð var skólamaður af lífi og sál og ritaði tvær bækur um skólasögu, Um verkmenntun við Eyjafjörð og Verkmenntaskólann á Akureyri og Gagnfræðaskóli Akureyrar: Saga skóla í sextíu og sjö ár. Hann vann að rann­sókn­um á ábú­enda­sögu í Eyjaf­irði og kom að út­gáfu nokk­urra rit­verka á því sviði.  Bernharð var enn fremur formaður ritnefndar Sögu Akureyrar sem Jón Hjaltason skráði og kom út í fimm bindum á árunum 1990-2009. Bern­h­arð tók virk­an þátt í bæj­ar­mál­um á Ak­ur­eyri og átti sæti í menn­ing­ar­mála­nefnd Ak­ur­eyr­ar og nefnd um kennslu á há­skóla­stigi á Ak­ur­eyri er lagði grunn að stofn­un Há­skól­ans á Ak­ur­eyri. Enn frem­ur var hann formaður Lyft­ingaráðs Ak­ur­eyr­ar og fé­lagi í Rótarý­klúbbi Ak­ur­eyr­ar. 

Bernharð Haraldsson

Aðalheiður Steingrímsdóttir og Þröstur Ásmundsson skrifa
13. júní 2025 | kl. 20:00

Bernharð Haraldsson

Gunnar Maríu Jónsson og Svanhildur Daníelsdóttir skrifa
13. júní 2025 | kl. 11:00

Bernharð Haraldsson

Hjalti Jón Sveinsson skrifar
13. júní 2025 | kl. 06:00

Ólafur Gísli Hilmarsson

Þorvaldur Hilmarsson, Kristín Hilmarsdóttir og fjölskyldur skrifa
30. apríl 2025 | kl. 12:00

Ólafur Gísli Hilmarsson

Gunnlaugur Þráinsson skrifar
30. apríl 2025 | kl. 12:00

Ólafur Gísli Hilmarsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
30. apríl 2025 | kl. 12:00