Áslaug Kristjánsdóttir – lífshlaupið
Áslaug Kristjánsdóttir fæddist þann 5. maí 1950 í Reykjavík og lést í faðmi fjölskyldu sinnar 22. maí á hjúkrunarheimilinu Skógarbrekku á Húsavík. Útför Áslaugar fer fram frá Akureyrarkirkju kl. 13:00 í dag, fimmtudag 4. júní.
Foreldrar Áslaugar voru hjónin Sigríður Sveinsdóttir og Kristján Hermannsson. Þegar Áslaug var ársgömul flutti fjölskyldan á bæinn Leyning í Saurbæjarhreppi og þar ólst hún upp.
Systkini hennar eru: Petra f. 15. mars 1952, d. 14. ágúst 2024, Haukur f. 17. apríl 1953, d. 1. október 2010, Erlingur Örn f. 31. mars 1957, Grétar f. 2. apríl 1959, d. 2. apríl 1959, Indriði f. 2. febrúar 1963, d.15. apríl 1992, Vilhjálmur Geir f. 21. janúar 1966.
Áslaug giftist Óðni Gunnsteini Gunnarssyni árið 1968 og þau áttu saman dótturina Heru Kristínu Óðinsdóttur f. 2. ágúst 1969, maki hennar er Sverrir Guðmundsson f. 1973. Börn Heru og Sverris eru Óðinn Bjarni, Helena María, Guðmundur og Freysteinn. Barnabörnin eru fimm, Rósant Ari, Sverrir Atlas, Eyvar Örn, Hera Rán og Kolfinna Eygló. Áslaug og Óðinn slitu þau samvistum árið 1973.
Áslaug giftist Gunnari Frímannssyni árið 1983 eignuðust þau saman dótturina Dagnýju Björgu Gunnarsdóttur f. 2. janúar 1985. Maki hennar er Ingi Freyr Sveinbjörnsson f. 1981 og börn þeirra eru Sóldís Áslaug og Máney Rún.
Gunnar átti fyrir Valgerði Maríu Gunnarsdóttur f. 8. mars 1969 og Davíð Rúnar Gunnarsson, f. 14. júní 1971. Maki Maríu er Guðmundur Heimir Jónsson f. 1974 og börn þeirra eru Hannes Daði Haraldsson og Kristín Trang. Barnabörnin eru tveir drengir, Haraldur Fróði og Rúnar Rökkvi. Maki Davíðs Rúnars er Berglind Júdith Jónasdóttir f. 1976 og börn þeirra eru Daði Hrannar, Valgarður Nói og Hanna Vigdís.
Gunnar og Áslaug bjuggu á Akureyri alla sína hjúskapartíð.
Hestamennska var Áslaugu í blóð borin og hræðsla við hesta var ekki til í hennar orðabók enda dýravinur mikill. Hún starfaði m.a. á Sólborg á Akureyri, Hæfingastöðinni, sambýlum og íbúakjarna fyrir geðfatlaða. Síðustu árin starfaði hún einnig sem stuðningsfulltrúi við starfsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri, þar sem hún vann náið með nemendum í starfsnámi og lagði áherslu á að virkja fólk og gefa öllum tækifæri til að taka þátt í samfélaginu. Það var henni hugleikið að íþróttir væru fyrir alla og vildi hún tryggja að fatlaðir gætu notið hestamennsku eins og aðrir. Ásamt Jónsteini Aðalsteinssyni setti hún á fót námskeið í hestamennsku fyrir fatlaða, bæði á Akureyri og á Botni í Eyjafjarðarsveit og voru þau með námskeiðin í fjölda ára. Áslaug var virkur þátttakandi og brautryðjandi í íþróttahreyfingunni og fékk fyrir það ýmsar viðurkenningar, til dæmis silfurmerki Léttis og gullmerki bæði Landsambands hestamanna og Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) fyrir störf sín.
Áslaug Kristjánsdóttir
Áslaug Kristjánsdóttir
Eiður Baldur Sigþórsson
Eiður Baldur Sigþórsson