Fara í efni
Íþróttir

Arna og Sarah aðstoða Aðalstein hjá Þór

Arna Sif Ásgrímsdóttir, til vinstri, og Sarah Elnicky verða aðstoðarþjálfarar Aðalsteins Jóhanns Friðriksson hjá Þór.
Arna Sif Ásgrímsdóttir og Sarah Elnicky hafa verið ráðnar aðstoðarþjálfarar knattspyrnuliðs Þórs og Arna leikur jafnframt áfram með liðinu. Þórsarar leika undir eigin merki á nýjan leik eftir að löngu samstarfi við KA um kvennalið lauk í haust.
 
 

Sarah Elnicky, sem þjálfaði kvennalið Völsungs á Húsavík síðustu ár, er um þessar mundir hluti af þjálfarateymi landsliðs Taívan og kemur til starfa á Akureyri 6. desember.

„Þær munu mynda sterkt teymi með Aðalsteini Jóhanni Friðrikssyni (Alla Jóa) í meistaraflokki kvenna á næsta tímabili. Sarah Elnicky þjálfaði granna okkar í Völsungi undanfarin þrjú ár. Fyrstu tvö árin þjálfaði hún með Alla Jóa, svo þau þekkjast vel. Auk þess að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks mun Sarah gegna gríðarlega mikilvægu í barna- og unglingastarfi félagsins þar sem hún verður með umsjón yfir þjálfarateymi 2. og 3.flokks auk þess að koma að þjálfun í yngstu flokkum. Hún verður þannig lykilmanneskja í að brúa bilið milli yngri flokka og meistaraflokks,“ segir í tilkynningu frá Þór í dag.