Íþróttir
Skautað í Höllinni - íshokkí og karfa syðra
28.11.2026 kl. 06:00
Íslandsmót á listskautum og í skautahlaupi fer fram í Skautahöllinni á Akureyri um helgina. Tvö af kvennaliðum Akureyrar taka tveggja leikja helgi fyrir sunnan, annars vegar lið Þórs í körfubolta og hins vegar hokkíkonurnar í SA. Þór mætir ungmennaliði Hauka í dag kl. 13 og SA mætir Fjölni í Grafarvoginum kl. 16:45 í seinni leik liðsins þessa helgina.
- Körfubolti: Kvennalið Þórs í körfuboltanum fer suður og leikur bæði í dag og á morgun. Þór sækir ungmennalið Hauka heim í Hafnarfjörðinn í dag og leiktíminn frekar óvenjulegur, flautað til leiks kl. 13. Eftir sigur á Selfyssingum í sjöundu umferðinni fór Þórsliðið upp að hinu Þórsliðinu, úr Þorlákshöfn, á toppi deildarinnar. Bæði liðin hafa unnið sex leiki af fyrstu sjö. Haukaliðið er í 5. sæti deildarinnar, hefur unnið fjóra leiki af sjö.
- Íshokkí: Kvennalið Skautafélags Akureyrar á annasama helgi fram undan. SA-konur mæta liði Fjölnis í Egilshöllinni öðru sinni í dag, en liðin mættust einnig í Egilshöllinni í gærkvöld. Tveggja leikja helgi í höfuðborginni hjá toppliði SA. Akureyringum hefur gengið vel það sem af er tímabilinu og er SA í toppsæti Toppdeildarinnar með 15 stig að loknum sex leikjum. SR hefur fimm stig að loknum sex leikjum og Fjölnir fjögur stig úr fjórum leikjum. Lið SA hefur aðeins tapað einum leik, eftir framlengingu, unnið hina fimm, þar af einn eftir framlengingu.
- Listskautar og skautahlaup: Það verður nóg um að vera í Skautahöllinni á Akureyri um helgina. Íslandsmót á listskautum fer fram í dag og á morgun, en helgin var opnuð með Íslandsmóti í skautahlaupi í gærkvöld. Keppni í skautahlaupi heldur síðan áfram kl. 16:30 í dag, að loknum fyrri keppnisdegi í listhlaupi, verður þá keppt í lengri vegalengdum. Átta þátttakendur eru í skautahlaupinu. Keppni á listskautum hefst kl. 10:45 í dag og stendur fram eftir degi. Á morgun hefst keppni á listskautum kl. 9:00. Í keppni á listskautum eru 45 keppendur skráðir til leiks. Að keppni lokinni fer fram verðlaunaafhending. Ókeypis aðgangur er inn á mótið.
- Körfubolti
Bæjarins beztu deild kvenna, 8. umferð
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 13
Haukar u - Þór
- Íshokkí
Toppdeild kvenna í íshokkí
Skautasvellið í Egilshöll kl. 16:45
Fjölnir - SA