Fara í efni
Íþróttir

Sex stiga tap Þórs gegn Selfossi í gær

Á myndinni til vinstri eru þeir Pétur Cariglia og Baldur Örn Jóhannesson í baráttu undir körfunni við Avery Cordell Sullivan og Aristote Bissokot, sem samanlagt tóku 27 fráköst. Til hægri sækir Hlynur Ingi Finnsson að körfu Selfyssinga og stigahæsti maður þeirra, Tristan Máni Morthens, er til varnar. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Þórsarar töpuðu með sex stiga mun fyrir Selfyssingum í næstefstu deild Íslandsmótsins í körfubolta í gær, Bæjarins beztu deildinni. Lokatölur 75-81. Batamerki eru á leik liðsins, sem hefur aðeins unnið tvo leiki af fyrstu níu og færðist niður í 11. sætið eftir tapið í gær. 

Þórsarar tóku forystuna í byrjun, en Selfyssingar svöruðu um hæl og leiddu með fjórum stigum að loknum fyrri hálfleiknum. Selfyssingar höfðu frumkvæðið eftir miðjan fyrsta leikhlutann, Þórsarar eltu en hleyptu gestunum þó aldrei mjög langt í burtu.

Þriðji leikhlutinn var hnífjafn þar til alveg í lokin, munurinn aðeins sex stig fyrir lokafjórðunginn. Strax í byrjun fjórða leikhlutans náðu Selfyssingar 12 stiga forskoti og reyndu Þórsarar hvað þeir gátu til að vinna upp þann mun, en þá var eins og það væri einhver veggur við fimm stigin og nær komust þeir ekki. Selfyssingar sigruðu að lokum með sex stiga mun.

Þór - Selfoss (20-24) (15-15) 35-39 (19-21) (21-21) 75-81 

Jalen Green og Pétur Cariglia skoruðu mest Þórsara í gær, Jalen með 19 stig og tíu fráköst og Pétur 18 stig, fimm fráköst og fimm stoðsendingar, báðir með 24 framlagspunkta. Stigahæstir Selfyssinga voru Tristan Máni Mortens með 22 stig og Avery Cordell Sullivan með 20 stig.

Helstu tölur úr leiknum, stig/fráköst/stoðsendingar:

Þór

Jalen Green 19/10/5, Pétur Cariglia 18/5/5, Justin Andrew 11/5/3, Hlynur Ingi Finnsson 11/3/0, Baldur Örn Jóhannesson 9/4/4, Axel Arnarsson 3/4/1, Andri Már Jóhannesson 2/2/0, Smári Jónsson 2/1/0. Arngrímur Friðrik Alfreðsson, Bergvin Ingi Magnússon, Hjálmar Helgi Jakobsson og Páll Nóel Hjálmarsson komu ekki við sögu í leiknum.

Selfoss

Tristan Máni Morthens 22/6/2, Avery Cordell Sullivan 20/17/4, Fjölnir Morthens 16/3/5, Aristote Bissokot 11/10/0, Halldór Benjamín Halldórsson 6/6/3, Logi Smárason 4/5/5, Óðinn Freyr Árnason 2/1/2. Sigurður Darri Magnússon komst ekki á glað og þeir Alex Rúnarsson og Benjamín Rökkvi Sigvaldason komu ekki við sögu í leiknum. 

Þórsarar færðust niður í 11. sæti deildarinnar með tapinu í gær, eru neðstir fjögurra liða sem öll hafa unnið tvo leiki, en fyrir ofan eru Snæfell, Skallagrímur og Hamar. Fjölnir situr á botninum með einn sigur. Þórsarar spila einmitt gegn tveimur af þessum liðum, Skallagrími og Snæfelli, í næstu tveimur leikjum, sem eru í lokaumferðum fyrri hluta mótsins.

Leikskýrsla og tölfræði

Staðan í deildinni

Næst:

  • Íþróttahöllin á Akureyri
    Fimmtudagur 3. desember kl. 19:15
    Þór - Skallagrímur