Fara í efni
Íþróttir

Tveir heimaleikir í karlahandboltanum

Karlalið Akureyrar í handbolta komu misglöð út úr síðustu umferð, eins og lesendur akureyri.net vita líklega flestir. Bæði fá þó stutta hvíld eftir sunnudagsleikinn því í dag er komið að leikjum hjá báðum liðunum í 12. umferð Olísdeildarinnar. Leikjadagskráin gerir þó ekki ráð fyrir því að handknattleiksáhugafólk geti alltaf fylgst með báðum liðunum því bæði liðin eiga heimaleik og leikir kvöldsins eru að hluta á sama tíma.

Það verður semsagt handboltaveisla á Akureyri í kvöld, en því miður fyrir almennt handboltaáhugafólk er aðeins hægt að bíta í aðra kökuna í þeirri veislu, eða svo gott sem. KA tekur á móti HK í KA-heimilinu og hefst sá leikur reyndar hálftíma á undan leik Þórs og Fram sem fram fer í Íþróttahöllinni.

KA er í 3. sæti deildarinnar með 16 stig úr 11 leikjum, en Þór er í 10. sætinu með sex stig. HK er í sætinu fyrir neðan Þór, einnig með sex stig og á inni leik gegn Val. Fram er í 6. sæti deildarinnar með 10 stig.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 12. umferð
    KA-heimilið kl. 18:30
    KA - HK

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 12. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19
    Þór - Fram