Fara í efni
Minningargreinar

Jón Ingi Cæsarsson

Verulega var mér brugðið, að heyra af andláti góðvinar míns, Jóns Inga Cæsarssonar þann 7. júní síðastliðinn. Miðvikudaginn áður, þann fjórða júní, hafði ég setið til borðs með honum á aðalfundi samtakanna, Arfur Akureyrarbæjar og var ekki annað að sjá, en að hann væri jafn stálsleginn og ætíð.

Hvenær leiðir okkar Jóns Inga lágu saman man ég ekki nákvæmlega, en það var í gegnum sameiginlegt áhugamál okkar, sögu bæjarins og varðveislu menningarminja; gæti hafa verið í fjölmennustu sögugöngu um Oddeyrina fyrr og síðar, sem hann leiddi í tengslum við 150 ára afmæli Akureyrarbæjar árið 2012. Nutu þar um 130 manns leiðsagnar hans. Við höfðum þá þegar vitað hvor af öðrum netleiðis og lesið pistla hvors annars í einhvern tíma fyrir það. Við sátum saman í Hverfisnefnd Oddeyrar í nokkur ár, en málefni Oddeyrar voru honum sérlega hugleikin en þar átti hann heimili frá frumbernsku og langstærstan hluta ævi sinnar. Frá 2022 sátum við saman í stjórn fyrrnefndra samtaka, Arfs Akureyrarbæjar, sem m.a. hefur það að markmiði að standa vörð um menningarminjar og varðveislu þeirra og tala fyrir skynsemi og varfærni í skipulagsmálum bæjarins. Það er skemmst frá því að segja, að ötulli og ósérhlífnari liðsmaður í framangreindum málefnum en Jón Ingi Cæsarsson, er virkilega vandfundinn.

Um árabil lét hann sig skipulagsmál mjög varða, vaktaði t.d. samviskusamlega allar fundargerðir og vefgáttir bæjarins og veitti sérlegt aðhald m.a. með greinaskrifum og athugasemdum, alltaf með hag umhverfisins og bæjarbúa að leiðarljósi. Stóð hann ætíð fast á sínu hvað það varðaði og lét mótbárur, sem stundum gátu orðið ansi miklar og hvassar, ekki slá sig út af laginu enda vel sjóaður í ólgusjó stjórnmálanna til áratuga. Þá er rétt að geta þess, að Jón Ingi var með allra fróðustu mönnum þegar kom að sögu Akureyrar og þá sérstaklega Oddeyrar og var ætíð fús að miðla af viskubrunni sínum, m.a. í Sögugöngum. Ég er ævinlega þakklátur fyrir að hafa verið þess heiðurs aðnjótandi, að leiða með honum slíka göngu um elsta hluta Oddeyrar sl. haust. Ég hef sl. ár gefið mig út fyrir að vera einhvers konar „sjálfskipaður sérfræðingur“ í húsasögu bæjarins og fyrir vikið, oft fengið símtöl þar sem ég spurður út í hin ýmsu málefni, tengd sögu bæjarins. Hefur það ætíð verið venja hjá mér, ef mig rekur í vörðurnar með erindi fyrirspyrjanda, að benda viðkomandi á Jón Inga, sérstaklega ef málið varðar Oddeyrina eða gamlar myndir, en Jón Ingi lumaði á ansi mörgum slíkum. Nú er því, illu heilli, sjálfhætt.

Ég sendi fjölskyldu og aðstandendum Jóns Inga Cæsarssonar innilegar samúðarkveðjur.

Arnór Bliki Hallmundsson

Jón Ingi Cæsarsson

Kristján L. Möller skrifar
20. júní 2025 | kl. 14:20

Jón Ingi Cæsarsson – lífshlaupið

19. júní 2025 | kl. 08:30

Jón Ingi Cæsarsson

Stjórn Arfs Akureyrarbæjar skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Samfylkingin á Akureyri skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Logi Einarsson skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Kristján Snorrason

Birgir Snorrason skrifar
16. júní 2025 | kl. 06:00