Eiður Baldur Sigþórsson
Elsku pabbi er nú farinn í draumalandið. Andlát hans kom óvænt þrátt fyrir að við vissum í hvað stefndi.
Pabbi var ekki maður margra orða, hann var hlédrægur og leið best í fámennum hópi. Hann var ósérhlífinn og alltaf tilbúinn að aðstoða þegar á þurfti. Hann var hagleiksmaður og það lék allt í höndunum á honum hvort sem það var smíðavinna, að vinna úr járni, myndlist eða matargerð.
Ef hann væri ungur í dag hefði hann örugglega orðið listamaður.
Á heimili foreldra minna eru margir fallegir munir sem pabbi smíðaði sem og myndir sem hann málaði bæði vatnslita- og olíuverk.
Hann var mikill sundkappi sem ungur maður og vann til margra verðlauna og átti Íslandsmet í björgunarsundi í mörg ár.
Við systkinin erum alin upp við sundiðkun frá unga aldri. Pabbi hugsaði alltaf vel um heilsuna og æfði sig, nú síðast keypti hann sér þrekhjól og var duglegur að nota það.
Eftir að hann hætti að vinna var hann ásamt móður minni mikið á Spáni þar sem hann endurbyggði hús og gerði að sínu.
Árið 1997 byggði hann sumarbústað í Mógilslandi. Í upphafi var um að ræða lítinn bjálkabústað sem hann stækkaði síðan í áföngum. Þar var sumrunum varið í gróðurvinnu, matjurtaræktun og trjárækt.
Honum féll sjaldan verk úr hendi. Síðustu árin hafði hann ekki þrek til erfiðra verka og dundaði sér við bakstur, að sulta og að gera marmelaði en það var fastur liður að sjóða appelsínumarmelaði þegar það var uppurið.
Ég minnist allra ferðalaganna sem við fórum í saman bæði innan- og utanlands og heimsókna í húsið þeirra mömmu og pabba á Spáni. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar þau komu akandi á litla Fordinum sínum, þá að nálgast áttrætt, alla leið frá Spáni og sóttu mig til St. Etienne í Austur-Frakklandi og við keyrðum síðan til Spánar. Við ferðuðumst aðeins um Frakkland í bakaleiðinni. Fyrir pabba var ekkert mál að keyra í útlöndum. Hann var búinn að keyra gamlan Pegeaut húsbíl víða um Evrópu og niður til Marokkó. Í ferðum okkar innanlands var hann mjög fróður um staðhætti og fólk. Síðasta ferðin okkar saman var vestur til Aðalvíkur þar sem foreldrar mínir komu í heimsókn í roki og rigningu. Pabbi hafði gaman af þrátt fyrir brælu enda gamall sjómaður.
Hvíl í friði pabbi minn.
Þín dóttir,
Eydís Rósa
Eiður Baldur Sigþórsson
Birgir Ágústsson
Jón Hólmgeirsson
Jón Hólmgeirsson