Fara í efni
Minningargreinar

Áslaug Kristjánsdóttir

Kveðja frá Hestamannafélaginu Létti.

Komið er að kveðjustund.

Í dag verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju, kær félagi okkar hestamanna á Akureyri.

Áslaug Kristjánsdóttir hefur í rúma hálfa öld verið félagsmaður okkar Léttismanna og sannarlega hefur fótpsor hennar markað nokkuð djúpt í sögu félagsins.

Saga hestaíþrótta óx mjög svo ásmegin hér á landi á áttunda áratug síðustu aldar og þar var í glæstum hópi kona, Áslaug Kristjánsdóttir bóndadóttir úr Eyjafirði og vildi gera gagn.

Ódrepandi áhugi hennar á vexti og viðgangi hestaíþrótta nýttist svo sannarlega og fljótt varð Áslaug valin til trúnaðarstarfa fyrir Íþróttadeild Léttis, og gegndi hún meðal annars formennsku í Í.D.L. lengur en nokkur annar og setti svo merkilegan svip sinn á framgang og eflingu íþróttarinnar, og sérstaklega hvað allt mótahald varðaði.

Ásamt góðum hópi fólks færði Áslaug hestamannamót hér á Akureyri á hærri stall þar sem fagmennskan og virðingin var í fyrirrúmi og enn þann dag í dag búum við að því starfi þess tíma.

Fagmennska, já, það var eiginlegt einkunnarorð Áslaugar og snyrtilegur klæðnaður knapa og nýting fallega félagsbúnings okkar Léttismanna, rauði jakkinn og ljósu buxurnar voru spariklæðnaður Áslaugar á hestamannamótum. Þar fór hún langfremst félagsmanna okkar. Áslaug bar ómælda virðingu og elsku til Léttisbúningsins.

Áslaug tók upp á sitt eindæmi að hefja verðlaunaafhendingar hestamóta hjá okkur Léttismönnum á virðulegri stall en þekktist hér á landi, leyfi ég mér að segja svo eftir var tekið um allt land.

Í mörg herrans ár og allt fram til ársins 2020 þá stjórnaði Áslaug verðlaunafhendingum hestamóta félagsins með eftirminnilegum glæsibrag og fékk í lið með sér unga kynslóð hestamanna til aðstoðar og það varð ekki betur gert.

Áslaug var ein af driffjöðrum eftirminnilegra sýninga okkar hestamanna á Samkomuhúsflötinni og fáir hestamenn hér í bæ mættu eins vel og dyggilega og einmitt okkar kona, og enn og aftur var það fagmennskan og fágunin sem hún hafði að leiðarljósi.

Einnig var Áslaug um nokkurra ára skeið leiðbeinandi með hestamennsku fatlaðra og þar vann hún ásamt Jónsteini Aðalsteinssyni mikið kraftaverkastarf svo aðdáun var á að horfa og eftir var tekið.

Það er sannarlega skarð fyrir skildi í okkar hóp hestamanna hér í bæ.

Áslaug Kristjánsdóttir var sæmd gullmerki Hestamannafélagsins Léttis árið 2018. Gullmerki Landssambands Hestamannafélaga L.H. sama ár og íþróttahreyfingin á Akureyri og Akureyrarbær heiðruðu hana líka með heiðursviðurkenningu fyrir nokkrum árum.

Allt verðugar viðurkenningar henni til handa fyrir frábært framlag Áslaugar Kristjánsdóttur til hestamennsku hér á Akureyri.

Öflug félagsmálakona og kær vinkona hefur lagt af stað yfir Gjallarbrú, fyrr en nokkur grunaði.

Vitað var af veikindum Áslaugar en engin veit hvenær kallið kemur, en það var of fljótt.

Hestamannafélagið Léttir vil nú að leiðarlokum þakka Áslaugu Kristjánsdóttur innilega fyrir samfylgdina í rúma hálfa öld og frábært framlag hennar til félagsins.

Hestamannafélagið Léttir sendir eftirlifandi eiginmanni Áslaugar, Gunnari Frímannssyni, börnum þeirra, barnabörnum sem og öllum öðrum ástvinum hennar sínar innilegustu samúðarkveðju.

Blessuð sé minning Áslaugar Kristjánsdóttur.

Hvíli hún í friði Guðs.

Hestamannafélagið Léttir Akureyri

Áslaug Kristjánsdóttir

Vilhjálmur G. Kristjánsson skrifar
04. júní 2026 | kl. 08:10

Áslaug Kristjánsdóttir

Sigfús Ólafur Helgason skrifar
04. júní 2026 | kl. 08:05

Eiður Baldur Sigþórsson

Ásdís Rósa, Eiður Þór, Sigríður Rósa, Sölvi Hinrik og Tinna Björk skrifa
20. maí 2026 | kl. 17:00

Eiður Baldur Sigþórsson

Eydís Rósa Eiðsdóttir skrifar
20. maí 2026 | kl. 17:00

Eiður Baldur Sigþórsson

Sigþór Gunnar Eiðsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 17:00