Fara í efni
Menning

Bærinn tekur formlega við Schulte-safninu

Karl-Werner Schulte á Minjasafninu á Akureyri í gær þar sem hann fór yfir sögu hins stórmerkilega kortasafns sem hann og eiginkona hans heitin, Gisela Schulte-Daxbök, hafa gefið Akureyrarbæ. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þjóðverjinn Karl-Werner Schulte fagnaði 80 ára afmæli sínu á Akureyri í gær með því að afhenda Akureyrarbæ 25 síðustu kortin í Íslandskortasafni sínu og eiginkonunnar, Gisela Schulte-Daxbök heitinnar. Kortin í safninu, sem varðveitt er á Minjasafninu á Akureyri, eru þar með orðin 212 og hluta þeirra má sjá á sýningunni Land fyrir stafni sem opnuð var í gær.

Schulte-safnið er „einstakt safn og stórkostlegt“, segir Wolfgang Crom, sem nýlega lét af starfi forstöðumanns kortadeildar Ríkisbókasafnsins í Berlín, en hann hélt erindi á Minjasafninu í gær.

Óðinn Svan Óðinsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, og Karl-Werner Schulte undirrituðu í gær samning þess efnis að Akureyrarbær hefur nú formlega tekið við gjöfinni miklu – Íslandskortasafni hjónanna Karls-Werners og Gisela Schulte-Daxbök.

Karl-Werner og Gisela tóku miklu ástfóstri við Akureyri fyrir margt löngu eins og akureyri.net hefur nokkrum sinnum fjallað um á síðustu árum. Þau söfnuðu lengi Íslandskortum eftir marga helstu kortagerðarmenn Evrópu fyrri alda; það elsta er frá 1507 og bættist í safnið í gær, það yngsta er frá árinu 1849.

Hjónin ákváðu á sínum tíma að Íslandskortasafn þeirra skyldi varðveitt á Akureyri um ókomna tíð. Þau afhentu Akureyrarbæ fyrstu kortin árið 2014 og nú lætur Karl-Werner staðar numið. Formlega, en þó bara kannski ... Afmælisbarnið gantaðist nefnilega með það í gær að safnarar ættu oft erfitt með að hætta og honum hefði nýlega boðist eitt mjög áhugavert kort til kaups!

Stór stund á Minjasafninu á Akureyri í gær. Frá vinstri: Haraldur Þór Egilsson safnstjóri Minjasafnsins, Clarissa Duvigneau sendiherra Þýskalands á Íslandi, Gunnar Már Gunnarsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Karl-Werner Schulte, Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins og Wolfgang Crom frá Ríkisbókasafninu í Berlín. 

Þegar sýningin var opnuð í gær hélt fyrst ávarp Sigfús Karlsson, formaður stjórnar Minjasafnsins, einnig Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands á Íslandi, og Gunnar Már Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar, sem tók við kortunum fyrir hönd Akureyrarbæjar. Þá kom Wolfgang Crom, sem nýlega lét af starfi forstöðumanns kortadeildar Ríkisbókasafnsins í Berlín, sérstaklega til Akureyrar af þessu tilefni og hélt erindi; fjallaði um eintak af korti eftir Ortelius sem stundum hefur verið kallað Guðbrandskortið.