Mars Baldurs er Ungskáld ársins 2025
Mars Baldurs hlaut í dag fyrstu verðlaun í árlegri ritlistakeppni Ungskálda sem voru veitt við hátíðlega athöfn á Amtsbókasafninu. Verðlaunin voru veitt fyrir verkið „Svefn“, í öðru sæti var Sólveig Lára Skarphéðinsdóttir fyrir verkið „Heilaþoka“ og í þriðja sæti var Eyrún Lilja Aradóttir fyrir verkið „23“.
„Þess má til gamans geta að þau hafa öll unnið ritlistakeppni Ungskálda áður og því nokkuð ljóst að þetta unga fólk á framtíðina fyrir sér í ritlistinni,“ segir í tilkynningu frá Amtsbókasafninu. Í„ keppnina í ár bárust 43 verk frá 23 höfundum og voru þau einstaklega fjölbreytt að þessu sinni. Allt frá stuttum ljóðum og prósum til rúmlega 100 blaðsíðna barnabókar og myndasögu.“
Í dómnefndinni sátu þau Arnar Arngrímsson, rithöfundur, Rakel Hinriksdóttir, listamaður og skáld, og Vilhjálmur B. Bragason, leikskáld og textasmiður. Öll verkin voru nafnlaus þegar dómnefnd fékk þau í hendurnar.
- Að Ungskáldaverkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri og Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Ungskáldaverkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.