Menning
Hvað er það sem skiptir raunverulega máli?
01.09.2026 kl. 06:00
AF BÓKUM – 86
Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
Í dag skrifar Eydís Stefanía Kristjánsdóttir_ _ _
Ef þig langar að lesa hlýja, fallega og hjartnæma bók sem fær þig til þess að hugsa um lífið og hvað það er sem raunverulega skiptir máli í lífinu þá mæli ég með því að lesa þessa – Milli himins og hér, eftir Cassandra Brunstedt.
Bókin fjallar um Majlis sem er 69 ára gömul og fær þær hræðilegu fréttir að hún eigi aðeins 8 mánuði eftir ólifaða. Einkadóttir hennar á von á sínu fyrsta barni og því fyrsta ömmubarnið á leiðinni. Eftir að barnið er fætt lendir dóttir hennar í erfiðleikum í hjónabandinu og Majils flytur úr sveitinni sinni heim til dóttur sinnar í Stokkhólmi. Þar kemst Majlis að því hvernig hún vill eyða sínum síðustu mánuðum og hvað það er sem skiptir mestu máli í lífinu.
Það er fallegt hvernig höfundur blandar saman sorg og gleði. Þrátt fyrir alvarlegt viðfangsefni þá er bókin hlý og vonrík og minnir mann á að það er aldrei of seint að breyta um stefnu, sættast við fortíðina og njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Mæli sérstaklega með þessari bók fyrir þau sem hafa gaman af tilfinningarríkum og fallegum sögum um lífið, fjölskylduna og ný tækifæri. Hún er bæði sorgleg og falleg á sama tíma og skilur mann eftir með hlýja tilfinningu.
Hafðu vasaklútinn hjá þér við lesturinn.