Fara í efni
Menning

Ljós og myrkur Atla í Hofi – MYNDIR

Atli Örvarsson var innilega þakklátur fyrir viðtökur tónleikagesta eftir að síðasti tónninn var sleginn. Þakklætið var sannarlega gagnkvæmt. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Tónskáldið Atli Örvarsson fyllti Hamraborgarsal menningarhússins Hofs ljósi og myrkri í gær, skírdag, þegar verk hans voru flutt af hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómveit Norðurlands, raftríóinu Tjöru, Sönghópi Sinfonia Nord, söngkonunni Þórhildi Örvarsdóttur, systur tónskáldsins og Atla sjálfum, sem var á sviðinu fyrri hluta tónleikanna og lék bæði á flygil og harmoniku.

Yfirskrift tónleikanna var „Ljós og myrkur“ og þar var boðið upp á, eins og Atli orðaði það sjálfur í viðtali sem akureyri.net birti í þremur hlutum í síðustu viku, „svolítinn þverskurð af því, hver ég er sem tónskáld í dag.“

Flutt voru lög af sólóplötum Atla, ýmis verk sem hann hefur samið fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti, og þá var frumflutt verkið Luminescence eða „Ljós í myrkri“ sem hann samdi sérstaklega fyrir tónleikana í Hofi.

„Það er viðeigandi að tónleikarnir verði haldnir núna, með hækkandi sól og við erum farin að sjá glitta í sumarið. Á myrkum tímum, þá er ljósið í mannfólkinu. Kærleikur og okkar æðri hvati sem manneskjur lýsir leið,“ sagði Atli í áðurnefndu viðtali.

Gestir tónleikanna í gær voru augljóslega afar hrifnir af því sem boðið var upp á og þökkuðu fyrir sig með löngu og innilegu lófaklappi. 

Atli „klæddi sig í nikkuna,“ eins og hann tók til orða, um stund á tónleikunum. Sönghópur SinfóníaNord í baksýn.

Blómagleði í lok tónleikanna; Atli Örvarsson, Þórhildur Örvarsdóttir og hljómsveitarstjórinn, Bjarni Frímann Bjarnason.

Ástæða er til að vekja athygli á afbragðs viðtali Rakelar Hinriksdóttur við Atla sem birtist í þremur hlutum á akureyri.net í síðustu viku í tilefni tónleikanna í Hofi