Fara í efni
Menning

Listaverk Flugsafnsins á Arnarflugssýningu

SÖFNIN OKKAR – 131

Frá Flugsafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Sérsýning ársins á Flugsafninu stendur nú yfir og er helguð flugfélaginu Arnarflugi. Innan um hefðbundna muni sem tengjast flugfélaginu er að finna þrjú listaverk sem gefin voru safninu í aðdraganda sýningarinnar.

Glerlistaverkið Örninn flýgur eftir myndlistarkonuna Höllu Har sem er á sérsýningu Flugsafnsins um Arnarflug. 

Örninn flýgur

Fyrst ber að nefna glerlistaverkið Örninn flýgur sem hjónin Gunnar heitinn Þorvaldsson og Katrín Pálsdóttir færðu safninu að gjöf í mars 2024. Verkið er unnið af gler- og myndlistakonunni Höllu Har á verkstæði Dr. H Oidtmann í Þýskalandi 1988.

Gunnar og Katrín keyptu verkið af þrotabúi Arnarflugs og varðveittu á heimili sínu þar til þau komu því í hendur Flugsafnsins. Arnarflug var þeim hjónum afar hjartfólgið; Gunnar var ekki einungis flugstjóri hjá félaginu heldur var hann jafnframt einn af stofnendum þess og um tíma framkvæmdastjóri. Hann var einnig aðalhvatamaður þess að Flugsafnið setti upp sýningu um Arnarflug árið 2026, þegar 50 ár væru liðin frá því að félagið var stofnað.

Annað listaverkanna á sýningunni sem Halla Sigmars, listakona og flugfreyja, vann eftir kroti Jóns Þórissonar leikmyndateiknara í flugi til Rimini árið 1979.

Listaverk verða til vegna flughræðslu

Hin listaverkin tvö eru unnin af listakonunni Höllu Sigmars, sem starfaði hjá Arnarflugi þegar það var og hét.

Saga listaverkanna tveggja er sú að í flugi 520 til Rimini árið 1979 var flughræddur farþegi sem óskaði eftir servíettum til að krota á til að dreifa huganum. Flugfreyjurnar létu hann fá bunka af servíettum og alla leiðina til Rimini sat hann niðursokkinn með tússpenna og teiknaði.

Á leið frá borði í Rimini rétti farþeginn flugfreyju bunkann og bað hana að henda þeim „eða eitthvað” eins og hann orðaði það. Eftir að hafa skoðað servíetturnar ákvað flugfreyjan að taka þær með sér heim og skoða betur.

Annað listaverka Höllu Sigmars á sýningunni sem hún gerði eftir kroti Jóns Þórissonar leikmyndateiknara.

Teiknarinn var Jón Þórisson leikmyndateiknari og flugfreyjan var Halla Sigmars.

Halla vann myndverk eftir krotinu á servíetturnar og urðu myndirnar sjö talsins. Myndirnar sem hún færði safninu eru númer 1 og 2. Eina gaf hún ekkju Jóns, Ragnheiði Steindórsdóttur leikkonu, og hinar fjórar varðveitir hún sjálf.

Öll verkin þrjú eru af einkennismerki Arnarflugs. Merkið hannaði teiknarinn Þórhildur Jónsdóttir og er af mörgum talið eitt fallegasta merki íslensks flugfélags. Við eftirlátum lesendum að dæma um það en hvetjum þá um leið til að leggja leið sína á Flugsafnið og bera listaverkin og sýninguna augum. Sýningin mun standa til vors 2027.

Hjónin Gunnar heitinn Þorvaldsson og Katrín Pálsdóttir með glerlistaverkið Örninn flýgur sem þau færðu safninu að gjöf í mars 2024.