Fara í efni
Menning

Forsetinn sendi Birki Blæ hamingjuóskir

Birkir Blær á sviðinu í Stokkhólmi eftir sigurinn á föstudagskvöldið. Ljósmynd: Guðmundur Svansson.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sendi Birki Blæ Óðinssyni heillaóskir á Facebook síðu embættisins eftir sigur Akureyringsins í sænsku Idol söngkeppninni á föstudagskvöldið.

„Ég óska Birki Blæ Óðinssyni hjartanlega til hamingju með glæsilegan sigur í sænsku Idol-keppninni. Ekki amalegt að ná þeim árangri í Svíþjóð, heimalandi Abba, í höll kenndri við Avicii heitinn, þann merka tónlistarmann. Og enn bætist í hóp víðfrægra söngvara frá Akureyri, höfuðstað Norðurlands. Aftur til hamingju, Birkir Blær!“