Fara í efni
Menning

Lokaatriði Birkis í Idol – MYNDBAND

Sigurstundin! Birkir Blær Óðinsson, þáttarstjórnandinn Pär Lernström og Jacqline Mossberg Mounkassa á sviðinu í Globen. Ljósmynd: Guðmundur Svansson.

Birkir Blær Óðinsson, sem sigraði í sænsku Idol söngkeppninni á sjónvarpsstöðinni TV4 á föstudagskvöldið, flutti þrjú lög í úrslitaþættinum. Það þriðja og síðasta, Weightless, söng hann svo aftur eftir að úrslitin höfðu verið kunngjörð. 

Smellið hér til að sjá síðasta atriði lokaþáttarins; þegar úrslitin voru tilkynnt, fagnaðarlætin sem brutust út og svo þegar Birkir Blær flutti lagið Weightless að ný. 

Smellið hér til að sjá og hlýða á flutning Birkis á Weightless hið fyrra sinni. 

Lag númer tvö í röðinni var soul-smellurinn frábæri It‘s A Man‘s, Man‘s, Man‘s World sem Bandaríkjamaðurinn James Brown gerði gríðarlega vinsælt fyrir margt löngu. Smellið hér til að horfa og hlýða á Birki flytja lagið.

Fyrsta lagið hans í úrslitaþættinum var All I ask, sem breska söngkonan Adele gerði vinsælt fyrir nokkrum árum. Hér er hægt að sjá hann og heyra.