Dúkristur Guðmundar Ármanns úr Innbænum
SÖFNIN OKKAR – 126
Frá Listasafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Guðmundur Ármann
Spítalavegur – Lækjargata
1979
Grafík, háþrykk, dúkrista
Stærð: 21.7 x 26.7 x 0 cm, með ramma 30 x 40 x 0 cm
Guðmundur Ármann (1944) á að baki langan feril í myndlist og myndlistarkennslu. Hann hefur haldið 52 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Guðmundur lauk prentsmíðanámi 1962, útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1966 og nam við Valand-listaháskólann í Gautaborg frá 1966-1972. Hann flutti til Akureyrar 1972 til að starfa sem myndlistarkennari, kláraði kennararéttindanám við Háskólann á Akureyri 2002 og lauk MEd-prófi í menntunarfræðum frá sama skóla 2013.
Listasafnið á Akureyri hefur sýnt verk Guðmundar Ármanns bæði á einkasýningum og á samsýningum. Í vor stóð yfir í safninu yfirlitssýningin Aðflæði, sem dró fram meginþræði í listsköpun hans á löngum ferli. Guðmundur vakti fyrst athygli á Akureyri með dúkristum sínum af húsum í innbænum.

Guðmundur var meðal þeirra listamanna sem leiddu endurvakningu grafíklistar á Íslandi árið 1969. Þá hófst blómaskeið íslenskrar grafíklistar sem öðlaðist í kjölfarið varanlegan sess í íslenskri myndlist. Grafíkverk eru unnin með því að rista eða æta mynd í prentflöt, svo sem málm, stein, tré eða línóleumdúk. Í verkum sínum notar Guðmundur línóleumdúk og vinnur því einkum á sviði dúkristu.
Verkið Spítalavegur – Lækjargata er dúkrista og sýnir þekkt kennileiti í innbænum, horn Spítalavegar og Lækjargötu.
Aðspurður um umrædda mynd svarar listamaðurinn sjálfur:
„Það var sumarið 1978 sem ég gerði blýhantsteikningar af húsunum í Innbænum. Ég gekk um hverfið, þar sem við bjuggum um þetta leyti með teikniblokk og fangaði nokkur myndefni. Það var síðan 1979 sem ég valdi nokkrar teikningar og gerði af þeim dúkristur, myndirnar voru skorin út í línoleum dúk og þrykktar í tölusettum eintökum. Valdi síðan 10, dúkristur og þrykkti hverja mynd í 100 eintökum og gaf út möppuna, „Innbærinn“ með tíu myndum. Sömuleiðis voru möppurnar tölusettar. Þessi mynd sýnir húsin á horni Spítalavegs og Lækjargötu. Litla húsið til vinstri ofan við húsið á horninu gekk undir nafninu Litla smiðjan.“ – Guðmundur Ármann, júní 2026.