Fara í efni
Mannlíf

Sprengingar heyrðust víða á Akureyri

Starfsmenn í Hlíðarfjalli grípa til þess ráðs annað veifið að nota litlar sprengjur til að setja af stað snjóflóð. Myndin var tekin eftir eitt slíkt flóð fyrir nokkrum árum.

Í síðustu viku spunnust nokkrar umræður á samfélagsmiðlum vegna sprenginga sem heyrðust víða um Akureyri að kvöldlagi. Tilgátur voru uppi um hávaðann mætti e.t.v. rekja til sprenginga Norðurorku vegna framkvæmda í Móahverfi eða sprenginga í Hlíðarfjalli og nú hefur hið sanna komið í ljós.

Sérstaklega mun hafa borið á kraftmiklum sprengihljóðum um kl. 20:30 sl. fimmtudagskvöld. Verkefnastjóri hjá Norðurorku segir að öllum sprengingum á þeirra vegum í Móahverfi hinu nýja hafi verið lokið tæpri viku áður en þar var verið að sprengja klöpp vegna fráveituskurða. Þar að auki hafi verið um svo umfangslitlar sprengingar að ræða að útilokað sé að þær hafi heyrst yfir í hinn enda bæjarins. Einnig hafi ekki verið sprengt eftir kl. 17 á daginn.

Sprengt í Hlíðarfjalli vegna snjóflóðavarna

Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, staðfestir hins vegar að sl. fimmtudagskvöld hafi þeir verið að sprengja í fjallinu á þessum tíma. „Við vorum að sprengja síðasta fimmtudagskvöld, vorum með handhleðslur 2,5 kg sem við vorum að varpa. Við erum að sprengja til að setja af stað snjóflóð og til að kanna stöðugleika í snjóalögum,“ segir Brynjar Helgi. „Þetta gerum við til að fyrirbyggja að snjóflóð fari af stað á skíðasvæðinu. Þetta er nokkrum sinnum á ári, aðallega þegar það eru sterkir vindar sem færa snjó til á svæðinu. Við erum einnig með sprengiturn sem er með 5 kg hleðslum, það kemur ansi mikill hávaði frá þeim hleðslum,“ útskýrir Brynjar og í ákveðnum veðuraðstæðum berst hljóðið frá sprengingunum vel niður til byggða og heyrist víða um bæinn.