Fara í efni
Mannlíf

Hlíðarfjall: Fjarkinn úr leik fram í vikulok

Stólalyftan Fjarkinn, neðst til vinstri á kortinu, er úr leik fram í lok vikunnar. Hægt er að komast upp á efra svæðið með því að nota togbrautirnar fyrir miðju. Mynd: hlidarfjall.is.

Síðastliðinn laugardag þurfti að stöðva stólalyftuna Fjarkann í Hlíðarfjalli vegna slits í fóðringu utan um keyrsluhjól. Samkvæmt upplýsingum á Facebook-síðu Hlíðarfjalls er ný fóðring á leið til landsins og vonast er til að lyftan verði komin aftur í notkun í lok vikunnar.

Stöðvun lyftunnar er varúðarráðstöfun til að koma í veg fyrir slit á lyftuvírnum sjálfum. Skíðafólk getur komist upp á efra svæðið með því að taka Hólabraut eða Skálabraut og síðan Hjallabraut. Síðan er stutt ganga upp á Strýtupall og Stromplyftu. 

Að öðru leyti er frábært færi í þeim brautum sem troðnar eru í fjallinu og á meðan Fjarkinn er úr leik er veittur 20% afsláttur af dagsmiðum í Hlíðarfjall.