Mannlíf
Hlíðarfjall: Fjallkonan er komin í gang
19.02.2026 kl. 19:00
Fjallkonan er syðsta lyftan á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, lengst til vinstri, og liggur upp á Fjallkonuhæð. Mynd: hlidarfjall.is
Stólalyftan Fjallkonan í Hlíðarfjalli var gangsett í dag, í fyrsta sinn á þessari skíðavertíð. Að því er fram kemur á Facebook-síðu skíðasvæðisins er stefnt að því að lyftan verði í gangi öll vetrarfríin, svo framarlega sem veður leyfir.
Ljómandi góðar aðstæður eru í fjallinu, þó að áfram sé varað við að fara út fyrir troðnar brautir. Búist er við margmenni og miklu fjöri, þegar fólk flykkist á skíði í vetrarfríum grunnskólanna.
Fjallkonan var tekin í notkun í apríl árið 2022 en uppsetning hennar tafðist nokkuð því fyrsta skóflustungan var tekin árið 2018. Ekki er hægt að hafa hana í gangi nema snjóalög á efra svæðinu leyfi það og veður sé hagstætt.
- Umfjöllun akureyri.net um Fjallkonuna þegar lyftan var tekin í notkun: Fjallkonan – nýju lyftunni gefið nafn