Fara í efni
Mannlíf

Skíðafélag Akureyrar og Hólmasól í samstarf

Litlu skíðavinirnir er bráðskemmtilegt og spennandi samfélagsverkefni sem Skíðafélag Akureyrar hefur hrint af stað í samstarfi við leikskólann Hólmasól. Verkefnið miðar að því að kynna skíðaíþróttir fyrir leikskólabörnum. Frá þessu er sagt á vef Skíðafélagsins.

Leikskólabörnin fá tækifæri til að kynnast skíðunum í gegnum leik, hreyfingu og útivist í skemmtilegu umhverfi. Um 30 börn úr Hólmasól taka þátt í verkefninu, sex sinnum yfir veturinn þar sem þau prófa gönguskíði og alpaskíði undir leiðsögn þjálfara frá Skíðafélagi Akureyrar og í fylgd starfsfólks leikskólans. Hér er um tilraunaverkefni að ræða sem gæti í framtíðinni þróast áfram og stæði þá fleiri leikskólum á Akureyri til boða að taka þátt.

„Verkefnið byggir á þeirri einföldu en mikilvægu hugsjón Skíðafélagsins að öll börn eigi rétt á því að finna sig í hreyfingu, upplifa gleði í náttúrunni, vera hluti af samfélagi sem styður þau og að fyrstu kynni barna af íþróttum þurfi að vera jákvæð,“ segir í frétt Skíðafélagsins.

„Skíðaiðkun er ekki aðeins íþrótt; hún er leið til að efla hugrekki, seiglu og þrautseigju sem og sjálfsaga og samvinnu. Aðstæður geta verið alls konar í fjallinu og því þarf stundum að klæða sig í mikinn búnað og hafa fyrir því að mæta upp í fjall. Við trúum því að skíðaiðkun kenni börnum að takast á við áskoranir sem styrkja sjálfsmynd þeirra - jafnt í fjallinu sem og í lífinu sjálfu,“ segir einnig á vef Skíðafélagsins. Þá sér félagið einnig tækifæri til að þróa verkefnið áfram sem hluta af stærra lýðheilsuverkefni fyrir börn á Akureyri.