Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 154. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar þetta er og jafnvel hvaða fólk er á þessari stórskemmtilegu mynd? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er mjög líklega berklahælið á Reykjum í Ölfusi, síðar fyrsta skólahús Garðyrkjuskóla ríkisins.  Húsið var byggt um 1930 en rifið árið 2005 eftir að það var notað til æfinga fyrir Slökkvilið Hveragerðis, skv. upplýsingum frá lesanda.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR

Upplýsingar hafa borist um langflestar myndanna frá Minjasafninu sem birst hafa hér síðustu missseri en óvenju lítið upp á síðkastið. Fólk er eindregið hvatt til þess að skoða gömlu myndirnar betur í því skyni að aðstoða safnið við að afla sem mestra upplýsinga.