Fara í efni
Íþróttir

Við ætluðum okkur sigur en stigið er gott

Aron Birkir Stefánsson ver skot Jakobs Héðins Róbertssonar (16) þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Aron Birkir Stefánsson markvörður og fyrirliði Þórs var ekki ánægður með þá niðurstöðu að leikurinn gegn KA í Bestu deild karla í fótbolta á nýja KA-vellinum í kvöld skyldi enda með markalausu jafntefli.

Fyrir vikið er Þór áfram í neðsta sæti deildarinnar, nú með 12 stig, einu minna en FH, og er þremur stigum á eftir KA og Stjörnunni í galopinni fallbaráttunni. Sigur hefði komið Þórsurum upp fyrir FH og að hlið KA-manna.

„Ég er ekki sáttur við úrslitin, við komum hingað til að sækja öll þrjú stigin. Ég tek því samt að hafa haldið markinu hreinu og ekki tapað leiknum. Stigið er alltaf gott en við ætluðum okkur sigur,“ sagði Aron Birkir við akureyri.net eftir leikinn.

Við vorum aðeins í brasi fyrstu 15-20 mínútur leiksins, þeir náðu nokkrum fyrirgjöfum sem urðu kannski ekki beint að færum en þeir voru aðeins líklegri. En síðan komumst við smám saman í takt, byrjuðum að spila og rúlla boltanum aðeins meira og eftir það var jafnvægi í leiknum.

Mér líður eins og augnablikið hafi verið aðeins meira með okkur í seinni hálfleiknum. Það var taugaspenna í gangi og menn eitthvað stressaðir en í heildina var þetta bara gaman. Stemningin var skemmtileg og það voru mörg augnablik í þessu sem maður tekur með sér. Við komum saman í Hamri, þar voru allir Þórsararnir og tóku á móti okkur og sendu okkur kveðjur upp á völl. Það er langt síðan þessir leikir milli Þórs og KA voru síðast og ég held að allir í bænum séu sammála um að þeir vilji hafa Þór og KA í alvöru leikjum á hverju ári. Svo er alltaf möguleikinn fyrir hendi að liðin mætist í þriðja sinn í haust.

En við tökum það út úr þessum leik að vera taplausir í tveimur leikjum og við héldum hreinu í dag. Það er margt jákvætt en líka margt sem við hefðum getað gert betur,” sagði Aron Birkir.

Vonandi gengur honum sem best

Aron Einar Gunnarsson var ekki með Þór, hann er á leið aftur til Katar og lék því aðeins einn leik með liðinu. Aron Birkir sagði að það væri vissulega eftirsjá að honum.

„Já, við söknuðum hans að sjálfsögðu. En þessi staða kom bara upp og við hugsum ekkert um það lengur. Vonandi gengur honum sem best þarna úti og við höldum áfram með okkar baráttu. Við keyrum þetta áfram á þeim leikmönnum sem eru á svæðinu og erum bara í góðum málum,“ sagði Aron Birkir Stefánsson.