Fara í efni
Íþróttir

Við þurfum að læsa hann einhvers staðar inni

Atli Sigurjónsson lék síðustu mínútur leiksins í dag. Mynd: Ármann Hinrik

Atli Sigurjónsson reyndasti leikmaður Þórs, tók þátt í að sigla heim sigri liðsins á FH, 2-1, í lokaumferð Bestu deildarinnar í fótbolta á Þróttarvellinum í Reykjavík í dag og var brosmildur eins og aðrir Þórsarar á svæðinu þegar akureyri.net ræddi við hann á meðan fögnuður stuðningsmanna Þórs með leikmönnum stóð sem hæst.

Með sigrinum tryggði Þór sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni og hafnaði í 10. sæti með 30 stig, einu meira en KA sem fékk 29 stig og er fallið niður í 1. deild ásamt ÍBV.

„Þetta er mjög skemmtilegt, við gætum verið hérna töluvert lengur en við þurfum víst að ná fluginu heim,“ sagði Atli sem leysti ungstirnið Einar Frey Halldórsson af hólmi á lokamínútum leiksins. Hann spilaði 18 af 27 leikjum Þórs í Bestu deildinni en missti talsvert úr á miðju tímabilinu vegna meiðsla og var aðallega í hlutverki varamanns eftir það.

Atli tók vel undir það að Þórsliðið hefði sýnt mikinn karakter á lokaspretti Íslandsmótsins, enda hélt liðið sér uppi með því að vinna þrjá síðustu leikina, og sagði að ekkert annað en sigur hefði komið til greina í aðdraganda leiksins við FH.

„Það var engin spurning, ég sá þetta á mönnum alla vikuna og fyrir leikinn, það sást í augunum á öllum að þeir voru tilbúnir í þetta. Svo þegar við sáum að það kæmi svona mikið af fólki til að horfa á þennan leik og styðja okkur í gegnum þetta þá var tilfinningin sú fyrir leikinn í dag að þetta væri aldrei nein spurning – við myndum sigla þessu heim.“

Þórsarar fengu góðan liðsauka fyrir seinni hluta tímabilsins og Atli hrósaði sérstaklega hinum 17 ára gamla Þorra Ingólfssyni fyrir frammistöðu hans í dag en hann kom til Þórs í láni frá Víkingi.

„Já, nýju mennirnir voru frábærir og smellpössuðu inn í liðið. Þorri kláraði þetta í dag með tveimur góðum mörkum, við þurfum að læsa hann einhvers staðar inni og megum ekki hleypa honum aftur suður!“ sagði Atli brosandi.

Hann er 35 ára gamall og kom aftur til liðs við Þórsara fyrir þetta tímabil eftir langa dvöl fyrir sunnan hjá KR og Breiðabliki. Þrátt fyrir fjarveruna á hann ríflega eitthundrað deildaleiki að baki með Þór. Aðspurður sagðist hann búast við því að spila áfram með liðinu á næsta tímabili.

„Ég á alla vega eitt ár eftir af samningnum við Þór en á eftir að ræða við fjölskylduna um endanlega niðurstöðu. Ég held að það séu þó meiri líkur en ekki að ég verði áfram með á næsta ári,“ sagði Atli Sigurjónsson.